Hjörvar: Íslenskum leikmanni var boðið að loka sig af inn á hóteli til að knýja fram sölu Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. janúar 2017 19:30
Guðmundur Benediktsson, Hjörvar Hafliðason og Bjarni Guðjónsson ræddu leikmannavald í fótboltanum í Messu gærkvöldisins á Stöð 2 Sport HD. Umræðan var í tengslum við vesenið sem er á Dmitri Payet, besta leikmanni West Ham. Payet neitar að spila fyrir Lundúnarliðið þar sem hann vill komast heim til Frakklands og spila fyrir Marseille en Slaven Bilic, knattspyrnustjóri West Ham, er ekki á því að selja leikmanninn. „Ef leikmaður neitar að spila fyrir liðið, átt þú þá ekki að neita að borga honum? Hann gengur til liðs við þá, gerir nýjan samning og verður lang launahæstur hjá félaginu. Má ekki neita að borga honum?“ spurði Hjörvar Hafliðason. „Ef þeir geta sannað að hann er ekki meiddur geta þeir sektað hann um tveggja vikna laun og það er meira en leikur á tveggjna vikna fresti,“ svaraði Bjarni Guðjónsson. Gummi Ben skaut þá spurningu á sérfræðingana hvort leikmannavald væri ekki orðið alltof mikið og Bjarni var fljótur að grípa boltann. „Þessu er ofboðslega erfitt að stýra því vald leikmenna er alltaf eitthvað. Félagið getur alveg sagt við leikmanninn að hann fari ekki neitt, en það verður að setja upp ákveðnar reglur. Hvað ætlar West Ham að gera við næsta leikmann? Á að leyfa honum að fara fyrir tvær eða fjórar milljónir?“ sagði Bjarni. „Liðið þarf að standa á einhverjum grunni og það er mjög klaufalegt þegar svona hlutir gerast. Það er ekki gott að leikmaður fari í verkfall til að komast í burtu en það er væntanlega umboðsmaður á bakvið hann sem er að segja honum að gera þetta.“ Hjörvar Hafliðason sagði þá bransasögu af íslenskum leikmanni sem var boðið að setja upp mikið leikrit þannig hann gæti komist burt frá sínu félagi. „Það var íslenskur leikmaður sem var mjög eftirsóttur og glugginn var að loka. Þá hafði samband við hann einn af stærri umboðsmönnum heims sem sagði að hann gæti komið honum burt. Umboðsmaðurinn sagðist bara ætla að loka leikmanninn inn á hóteli í nokkra daga og þegar hann kæmi út af því væri hann kominn í nýtt lið. Það gerðist reyndar ekki, en svona ýta þeir þessu í gegn. Þetta hefur ítrekað gerst,“ sagði Hjörvar Hafliðason. Alla umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti John Cena hættur að glíma Sport Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Hundrað ára vaxtarræktarkappi Sport Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Isak tæpur og Gakpo frá Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Kærasta Haaland hefur fengið nóg Girti niður um liðsfélagann í markafagni Skuldir Man United nú meira en 127 milljarðar Tóku hetjuna með sér í Evrópuleikinn Af hverju spila ekki fleiri konur Fantasy? Býður Salah velkominn til Sádi-Arabíu Mjög hættulegur vítahringur að mati Arteta Henry ekki hrifinn af hegðun Arsenal-manna í leikslok Sádi-arabísk félög sögð vilja kaupa Mo Salah „Ekki gleyma mér“ Sjá meira