Zlatan: Eins og alltaf læt ég sérfræðingana sjúga á sér eistun Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. janúar 2017 08:00 Zlatan Ibrahimovic segir flest það sem honum dettur í hug. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, segir að mörkin sín 17 fyrir liðið á fyrri hluta leiktíðar neyði sérfræðingana og alla þá sem efuðust um getu hans til að sjúga á sér eistun (e. eat their balls). Enn fremur segir Svíinn að United geti enn orðið enskur meistari. Manchester United er búið að vinna fimm leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni og mætir West Ham klukkan 17.15 en sex leikir fara fram í dag. Zlatan, sem er 35 ára gamall, er búinn að skora 50 mörk á árinu fyrir PSG og United en löglegt mark var tekið af honum í síðasta sigurleik gegn Middlesbrough.Markið má sjá í spilaranum að neðan (0:48) ásamt því helsta úr leiknum þar sem United bjargaði sér fyrir horn undir lokin.Bara Lionel Messi skoraði fleiri mörk en Zlatan á síðasta ári fyrir félagslið en Argentínumaðurinn magnaði setti 51 mark fyrir Barcelona. Zlatan hefði jafnað við hann hefði markið gegn Boro fengið að standa. Svínn er heldur betur sáttur við árið 2016: „Ég átti frábært ár og ég kvarta ekki. Ég kom til United og fyrstu sex mánuðirnir hérna hafa verið frábærir,“ segir Zlatan en hann ræddi við blaðamenn fyrir leikinn gegn West Ham. „Ég er gríðarlega ánægður. Vonandi getum við haldið áfram svona og haldið áfram að vinna. Mér líður vel. Ég veit ekki hversu mörg ár ég á eftir en ég nýt þess að spila fótbolta. Það sögðu allir að ég gæti ekki spilað í ensku úrvalsdeildinni en eins og alltaf neyði ég alla til að sjúga á sér eistun,“ segir Zlatan en hann beini orðum sínum að sérfræðingum sem fá borgað fyrir að greina leiki í deildinni. „Þetta gefur mér mikla orku, treystið mér. Ég fæ mikla orku út úr þessu því þeir fá borgað fyrir að bulla en ég fæ borgað fyrir að nota fæturna. Þess vegna hef ég svo gaman að þessu,“ segir Zlatan Ibrahimovic.
Enski boltinn Mest lesið Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Formúla 1 Leik lokið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Barist um undirskrift Nunez Enski boltinn Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Íslenski boltinn „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Sjá meira