Wenger: Enskir stjórar fá ekki nógu mörg tækifæri Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. janúar 2017 08:30 Arsene Wenger vill sjá fleiri Englendinga. vísir/getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, telur að ekki nógu margir enskir stjórar fái tækifæri til að spreyta sig í ensku úrvalsdeildinni en hann hrósar hinum unga Eddie Howe, stjóra Bournemouth, fyrir að nýta sitt tækifæri til fullnustu. Howe er aðeins einn af fjórum Englendingum sem stýra liði í ensku úrvalsdeildinni en hann kom Bournemouth upp árið 2015 og er að vinna í því að gera liðið að fastagesti í vinsælustu deild heims. Arsenal og Bournemouth mætast einmitt annað kvöld. Wenger hefur miklar mætur á Howe en minnist þess að hann var einn af fáum erlendum stjórum í ensku úrvalsdeildinni þegar hann mætti með látum árið 1996. „Þegar ég kom hingað fengu erlendir stjórar ekki tækifæri og því var ég frekar einmanna til að byrja með. Í dag hefur þetta snúist við því enskir stjórar fá ekki nógu mörg tækifæri,“ segir Wenger í viðtali við Sky Sports. „Howe er undantekning. Hann er ungur og flottur stjóri sem fékk sitt tækifæri og er að gera Bournemouth að föstu úrvalsdeildarliði. Hann er gott dæmi um að ef ungir enskir stjórar eru tilbúnir að leggja mikið á sig þá er hægt að fá tækifæri í úrvalsdeildinni.“ „Það má ekki gleyma því sem hann gerði með liðið í B-deildinni þar sem það skoraði yfir 100 mörk. Það er ekki bara að Bournemouth hélt sér í deildinni á síðustu leiktíð heldur spilar það svo góðan fótbolta. Þess vegna sér maður framtíðina svo bjarta fyrir Eddie Howe,“ segir Arsene Wenger.
Enski boltinn Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Sjá meira