Sjötti sigur Manchester United í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2017 19:00 Juan Mata fagnar marki sínu. Vísir/AFP
Manchester United nálgast efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar hægt og rólega en liðið vann sinn sjötta leik í röð í kvöld. Manchester United vann þá 2-0 útisigur á West Ham United í London en bæði mörk liðsins komu í seinni hálfleiknum. United-liðið naut góðs af því að spila ellefu á móti tíu frá fimmtándu mínútu leiksins. Varamaðurinn Juan Mata og Zlatan Ibrahimovic skoruðu mörk Manchester United í leiknum. Ibrahimovic hefur þar með skorað 13 mörk í 20 deildarleikjum þar af níu þeirra í síðustu átta leikjum. Manchester United hefur nú fengið 18 stig af 18 mögulegum í síðustu sex leikjum sínum og ennfremur ekki tapað í ensku úrvalsdeildinni síðan 23. október eða í ellefu leikjum í röð. West Ham missti mann af velli strax á 15. mínútu þegar Sofiane Feghouli fékk beint rautt spjald fyrri tæklingu á Phil Jones. Flestir geta verið sammála því að þetta hafi verið mjög harður dómur. Manchester United náði ekki að nýta sér þetta í fyrri hálfleiknum og staðan var enn markalaust í hálfleik. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, setti Juan Mata inn fyrir Matteo Darmian í hálfleik en það var eiginlega ekki fyrr en Marcus Rashford kom inná fyrir Jesse Lingard á 58. mínútu sem hlutirnir fóru að gerast. Marcus Rashford lagði upp mark fyrir Juan Mata fjórum mínútum síðar og var mjög ógnandi það sem eftir lifði leiksins. Zlatan Ibrahimovic skoraði annað markið á 78. mínútu en hann var rangstæður þegar hann fékk boltann frá Ander Herrera. Marcus Rashford hefði átt að fá fleiri stoðsendingar en félögum hans tókst ekki að bæta við mörkum þrátt fyrir góða þjónustu.
Enski boltinn Mest lesið Hættur aðeins þrítugur Golf Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Fleiri fréttir Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Sjá meira