Stoke City hoppaði upp um fjögur sæti | Úrslit kvöldsins í enska | Sjáðu mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2017 20:00 Peter Crouch fagnar marki sínu. vísir/getty
Stoke City komst upp í ellefta sætið eftir 2-0 sigur á Watford, Swansea City náði dýrmætum þremur stigum á útivelli í fallbaráttuslag og Arsenal náði stigi á ótrúlegan hátt í sex marka leik. Þrír leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og það var líf, fjör og dramatík í þeim öllum. Stoke fór úr fimmtánda sæti og upp í það ellefta þökk sé mörkum Ryan Shawcross og Peter Crouch. Bæði mörkin komu eftir stoðsendingar frá Charlie Adam. Þetta var fyrsti sigur Stoke-liðsins síðan í byrjun desember en liðið var fyrir leikinn búið að leika fimm deildarleiki í röð án þess að fagna sigri. Watford er aftur á móti í miklum vandræðum enda hefur liðið aðeins fengið eitt stig út úr síðustu fimm leikjum sínum og er nú að dragast niður í fallbaráttuna. Swansea City vann lífsnauðsynlegan sigur á Crystal Palace á útivelli í kvöld í miklu fallbaráttuslag á Selhurst Park í London. Swansea vann 2-1 sigur þökk sé sigurmarki Ángel Rangel á 88. mínútu en fimm mínútum fyrr hafði Wilfried Zaha jafnað metin. Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp fyrra mark Swansea og hefur þar með gefið sex stoðsendingar á tímabilinu. Arsenal skoraði þrjú mörk á síðustu tuttugu mínútum og tryggði sér 3-3 jafntefli á útivelli á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þetta eru grátleg úrslit fyrir heimamenn í Bournemouth sem spiluðu lengstum frábærlega og fengu færi til að bæta við mörkum áður en þeir misstu mann af velli átta mínútum fyrir leikslok.Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í kvöld:Bournemouth - Arsenal 3-3 1-0 Charlie Daniels (16.), 2-0 Callum Wilson, víti (21.), 3-0 Ryan Fraser (58.), 3-1 Alexis Sánchez (70.), 3-2 Lucas Pérez (75.), 3-3 Olivier Giroud (90.+2).Crystal Palace - Swansea 1-2 0-1 Alfie Mawson (42.), 1-1 Wilfried Zaha (83.), 1-2 Ángel Rangel (88.)Stoke - Watford 2-0 1-0 Ryan Shawcross (45.), 2-0 Peter Crouch (49.)
Enski boltinn Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Enski boltinn „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Fótbolti Í beinni: Víkingur - Bröndby | Danska stórliðið mætt í Víkina Fótbolti Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Íslenski boltinn Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Íslenski boltinn Í beinni: Zrinjski - Breiðablik | Blikarnir mættir í Evrópudeildina Fótbolti Blikarnir hoppuðu út í á Fótbolti Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Handbolti Reyndu að ráða Solskjær áður en þeir réðu svo Heimi Hallgríms Fótbolti Fleiri fréttir Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjá meira