John Obi Mikel stekkur ofan í kínverska gullpottinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. janúar 2017 10:30 John Obi Mikel kveður Chelsea. vísir/getty
Nígeríski fótboltamaðurinn John Obi Mikel hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni en hann er á leið til kínverska úrvalsdeildarliðsins Tianjin Teda. Frá þessu greinir hann sjálfur á samfélagsmiðlum þar sem Mikel segir: „Það er kominn tími til að kveðja eftir tíu ár og 374 leiki fyrir Chelsea.“ Nígeríumaðurinn gekk í raðir Chelsea 19 ára gamall frá Lyn í Noregi og hefur unnið ellefu titla með enska liðinu. Hann hefur aftur á móti ekki spilað einn einasta leik undir stjórn Antonio Conte sem er ástæðan fyrir því að hann er að fara. „Ég er hæstánægður með að ganga í raðir Tianjin Teda á þessum tíma þegar kínverska úrvalsdeildin er að taka á flug. Ég hlakka mikið til að hjálpa félaginu að stækka jafnt innan sem utan vallar á næstu árum,“ segir Mikel. Með þessum félagaskiptum bætist John Obi Mikel í hóp þekktra landsliðsmanna sem elta gullið til Kína en þar í landi eru menn að borga gríðarlegar upphæðir til að landa bitum á borð við Nígeríumanninn. Brasilíumaðurinn Oscar samdi við Shanghai SIPG á dögunum en undanfarin misseri hafa leikmenn á borð við Hulk, Ezequiel Lavezzi, Jackson Martínez, Carlos Tévez og Alex Teixeira allir samið við lið í kínversku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Fótbolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Fleiri fréttir Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Sjá meira