Conte: Diego Costa vill vera áfram hjá Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. janúar 2017 16:30 Antonio Conte og Diego Costa á góðri stundu. Vísir/Getty
Það er ekki hægt að heyra annað en að Diego Costa muni spila sinn hundraðasta leik með Chelsea á móti Hull á sunnudaginn. Diego Costa var ekki í leikmannahópi Chelsea um síðustu helgi og í framhaldinu var mikið skrifað um það í enskum miðlum að Costa vildi fara frá félaginu eftir rifildi við knattspyrnustjórann Antonio Conte og ofurtilboð frá Kína. Opinbera ástæðan fyrir fjarveru Diego Costa í leiknum var að hann hefði meiðst á baki á æfingu. Antonio Conte var spurður út í Diego Costa á blaðamannafundi í dag. „Ég held að hann vilji vera áfram hjá Chelsea. Hann er ánægður með að halda áfram að spila fyrir okkur,“ sagði Antonio Conte. Diego Costa hefur skorað 14 mörk og gefið 5 stoðsendingar í 19 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. „Ég sé engin vandamál í mínu liði. Ég hef heyrt mikið af sögusögnum um Diego en aðalatriðið er að hann æfði með okkur í vikunni, er laus við bakverkinn og getur spilað um helgina,“ sagði Antonio Conte. „Hann er mikilvægur leikmaður fyrir okkur og það vitum við allir. Þegar hann er klár og í formi þá hefur hann alltaf spilað hjá mér,“ sagði Conte en mun Diego Costa þá byrja inná á móti Hull á sunnudaginn? „Við sjáum til. Ég vil ekki gefa mótherjanum eitthvað forskot. Það er frábært fyrir hann að ná að spila hundrað leiki fyrir félagið og ég vona að við getum haldið upp á það með sigri,“ sagði Conte.
Enski boltinn Mest lesið Stuðningsfólk Fortuna brjálað út í Ísak Bergmann Fótbolti Ósáttur Davíð Smári: Einn maður sem eyðileggur leikinn Íslenski boltinn Tveir látnir og fleiri hundruð handtekin í óeirðum eftir sigur PSG Fótbolti „Ég held það vilji enginn upplifa svona aftur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - Vestri 2-1 | Atlarnir stálu sigrinum af Vestra Íslenski boltinn Kolbeinn er WBF heimsmeistari Sport Gísli Þorgeir meiddist enn á ný á öxl Handbolti Sævar hundeltur af blaðamönnum í Danmörku og Noregi Fótbolti Í beinni: Breiðablik - Víkingur R. | Stórleikur í Kópavogi Íslenski boltinn Hispurslaus Amorim mun reynast Man United vel Enski boltinn Fleiri fréttir Rauðu djöflarnir staðfesta kaup á Cunha Hispurslaus Amorim mun reynast Man United vel Arsenal í viðræðum við Leipzig vegna Šeško Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City Tottenham lætur fimm fara og festir fyrstu kaup sumarsins Fyrrum aðstoðarmaður Klopp aðstoðar Guardiola á næsta tímabili Ungu strákarnir björguðu andliti Man United í Hong Kong „Auðveld ákvörðun“ þegar hann heyrði af áhuga Liverpool Enn hærra metboð frá Liverpool Trent með á HM og Liverpool fær væna summu Skrifar undir fimm ára samning við Liverpool Fyrirliði Man. Utd íhugar alvarlega risatilboð frá Sádi-Arabíu Kaupa Delap og eru í viðræðum við Sancho Enginn labbaði meira en verðandi leikmaður Man United Arsenal að sækja miðjumann þó það sárvanti framherja Henry segir að Arsenal hafi ekki staðið undir væntingum United niðurlægt í Malasíu Leita til Liverpool að nýjum kollega Hákonar Stuðningsmenn Chelsea köstuðu glösum og stólum í Póllandi „Án Meistaradeildarinnar þurfum við ekki stóran leikmannahóp“ Forstjóri Liverpool þakkar stuðningsmönnum sem hjálpuðu hver öðrum Niðurbrotinn Klopp í sjokki Man City vilja Reijnders áður en HM félagsliða hefst Settu met í töpum en spila í Meistaradeild Evrópu Wirtz vill bara Liverpool og metupphæð komin á borðið Bein útsending: Englandsmeistaratitlinum fagnað í Liverpool Allt klárt fyrir fyrstu kaup Man. Utd í sumar Lokaumferðin í enska: Newcastle hélt Meistaradeildarsætinu Garnacho ekki í hóp Ætlar að biðja stuðningsmennina afsökunar eftir lokaleikinn Sjá meira