James útilokar sjálfur að fara til United í janúar Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. janúar 2017 12:00 James Rodríguez verður áfram á Bernabéu. vísir/getty
Kólumbíski landsliðsmaðurinn James Rodríguez fer ekki til Manchester United í janúar eins og skrifað hefur verið um. Þessi öflugi miðjumaður hefur verið sterklega orðaður við United undanfarnar vikur og mánuði. José Mourinho ætlar að styrkja sveit sína í janúar fyrir átökin á seinni hluta leiktíðar en liðið er enn í baráttu um Meistaradeildarsæti auk þess sem það á fyrir höndum leiki í undanúrslitum deildabikarsins, útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar og þá fer enski bikarinn af stað um helgina. James vill alls ekki yfirgefa Bernabéu þrátt fyrir að vera ekki fastamaður í liði Zinedine Zidane en Kólumbíumaðurinn er aðeins búinn að byrja tvo af síðustu tíu deildarleikjum spænska stórliðsins. Miðjumaðurinn var spurður út í orðrómana eftir 3-0 bikarsigur Real Madrid gegn Sevilla í gærkvöldi og þar útilokaði James að yfirgefa spænsku höfuðborgina. „Real Madrid er félagið sem mig dreymdi um að spila fyrir og hér er ég að upplifa drauminn. Ég er þar sem ég vildi alltaf komast. Að heyra fólkið á Bernabéu syngja nafn mitt er draumi líkast,“ segir James Rodríguez.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Fleiri fréttir Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Sjá meira