Liverpool fékk á sig tvö víti og tapaði stigum á móti einu af neðstu liðunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2017 16:45 Jermain Defoe skoraði tvö mörk úr vítum í dag. Hér fagnar hann. vísir/getty
Liverpool tapaði stigum á móti einu af neðstu liðum ensku úrvalsdeildarinnar í dag þegar Sunderland og Liverpool gerðu 2-2 jafntefli á Leikvangi ljóssins. Sunderland endaði þar með fjögurra leikja sigurgöngu Liverpool-liðsins og Chelsea á nú möguleika á því að ná níu stiga forystu á toppi deildarinnar á miðvikudagskvöldið. Liverpool komst tvisvar yfir í leiknum en Jermain Defoe jafnaði leikinn í tvígang og í bæði skiptin úr vítaspyrnum sem voru réttilega dæmdar á klaufalega leikmenn Liverpool-liðsins. Sadio Mané fór frá því að vera hetja Liverpool í að verða skúrkurinn á aðeins tólf mínútum í seinni hálfleik en þetta var hans síðasti leikur með Liverpool fyrir Afríkukeppnina. Mane kom Liverpool í 2-1 en fékk síðan á sig víti. Liverpool tapaði ekki bara stigum því Daniel Sturridge fór meiddur af velli í seinni hálfleiknum eftir að hafa verið mjög ógnandi allan tímann. Daniel Sturridge var í fyrsta sinn í byrjunarliði Liverpool í ensku úrvalsdeildinni síðan í leik á móti Manchester United 17. október. Sturridge þakkaði fyrir sig með því að koma Liverpool í 1-0 á 19. mínútu. Sturridge skallaði þá boltann yfir Vito Mannone í markinu eftir að Dejan Lovren skaut boltanum í átt að markinu. Sturridge var búinn að vera nálægt því að skora áður í leiknum en Mannone varði þá frábærlega frá honum í tvígang, fyrst á 8. mínútur og svo aftur á 18. mínútu. Sunderland var þó ekki lengi að jafna. Ragnar Klavan braut á Didier Ndong og Jermain Defoe skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni á 25. mínútu. Jermain Defoe fékk algjört dauðafæri til að koma Sunderland yfir tveimur mínútum eftir markið þegar hann slapp einn í gegn en Simon Mignolet bjargaði vel. Sadio Mané kom Liverpool í 2-1 á 72. mínútu en breyttist svo í skúrk tólf mínútum síðar þegar hann fékk á sig vítaspyrnu fyrir að verja skot úr aukaspyrnu með hendi. Jermain Defoe fór aftur á vítapunktinn og skoraði af enn meira öryggi en í fyrri hálfleiknum.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Fleiri fréttir Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Sjá meira