Arsenal í viðræðum um miðvörð og framherji gæti verið á leiðinni Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. júlí 2016 10:30 Mario Mandzukic er á radarnum hjá Arsenal. vísir/getty
Arsenal og Valencia eiga í viðræðum um kaup enska félagsins á þýska miðverðinum Shkodran Mustafi samkvæmt frétt Sky Sports. Mustafi er 24 ára gamall þýskur landsliðsmaður sem hefur spilað með Valencia í tvö ár en hann var þar áður á mála hjá Southampton og Everton á Englandi þar sem hann spilaði ekki leik. Riftunarverð miðvarðarins hjá Valencia er 42 milljónir punda en Sky í Þýskalandi segist hafa heimildir fyrir því að Arsenal geti fengið Mustafi fyrir 25,3 milljónir auk 8,4 milljóna í árangurstengdar greiðslur. Mustafi æfði með Valencia í fyrsta sinn á þessu undirbúningstímabili á fimmtudaginn eftir EM-fríið sitt en hann og umboðsmaður hans eiga flug til Spánar í dag þar sem þeir munu ræða kaupverðið við forráðamenn Valencia. Arsenal ætlar ekki bara að fá sér miðvörð til að þétta raðirnar vegna meiðsla Per Mertesacker heldur er Arsene Wenger einnig á höttunum eftir sóknarmanni. Þetta staðfesti hann á fréttamannafundi í gær. Tilboði félagsins í franska framherjann Alexander Lacazzette var hafnað en nú halda enskir miðlar því fram að Arsenal ætli að gera Juventus tilboð í króatíska landsliðsframherjann Mario Mandzukic. Arsenal tapaði baráttunni um Gonzalo Higuaín sem einmitt fór til Juventus en með komu hans þangað fækkar tækifærum Mandzukic.
Enski boltinn Mest lesið Joshua í bílslysi þar sem tveir létust Sport Þetta er vitað um banaslysið sem Anthony Joshua slapp lifandi úr Sport Þreytt á umræðu um líkamann sinn: „Á ekki að tjá sig um það“ Sport Hneysklaður á ósönnum orðrómum Fótbolti Mennirnir sem létust voru þjálfarar og nánir vinir Anthony Joshua Sport Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Enski boltinn Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Fótbolti „Þegar þú spilar við Gary Anderson er alltaf pláss fyrir flugeldasýningu“ Sport Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Enski boltinn Strákarnir komnir í úrslit á Sparkassen Handbolti Fleiri fréttir Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Vildi ekki láta undan pressu frá fjölmiðlamönnum Man Utd samdi við fyrrum liðsfélaga Glódísar Perlu hjá Bayern Gefur í skyn að Arsenal opni veskið í janúar „Einn mesti hugsuðurinn í boltanum“ Semenyo vill að allt verði klárt fyrir nýársdag „Knattspyrnustjórar eru ekki töframenn“ Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Skynjar stress hjá Arsenal Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sjá meira