Stjóri Gylfa rekinn og Bandaríkjamaður tekur við Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. október 2016 11:28 Francesco Guidolin. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson verður kominn með nýjan knattspyrnustjóra hjá Swansea City þegar hann snýr til baka til Wales eftir landsleikjahléið. Swansea City rak í dag ítalska knattspyrnustjórann Francesco Guidolin og hefur þegar fundið eftirmann hans í Bandaríkjamanninum Bob Bradley. Francesco Guidolin fékk ekki góða afmælisgjöf frá Swansea en hann heldur upp á 61. árs afmæli sitt í dag. Guidolin kom fyrst til félagsins á sex mánaða samningi í janúar eftir að Garry Monk var látinn fara. Hann skrifaði síðan undir tveggja ára samning í maí eftir að hafa skilað liðinu upp í tólfta sæti. Það eru aðeins sjö leikir búnir að tímabilinu en Swansea City situr í 17. sætinu eftir sex leiki í röð án sigurs. Swansea City vann nýliða Burnley í fyrstu umferð en hafa síðan aðeins náð í 1 stig af 18 mögulegum. Lokaleikur var 2-1 tapi á heimavelli á móti Liverpool um helgina en Swansea komst þar í 1-0. Eigendur Swansea City eru bandarískir en þeir keyptu félagið í sumar og hafa nú fengið landa sinn í knattspyrnustjórastólinn. Bob Bradley verður fyrsti bandaríski knattspyrnustjórinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Bradley var áður þjálfari franska liðsins Le Harve en hann þjálfaði bandaríska landsliðið í fimm ár frá 2006 til 2011.We can confirm the club has parted company with Francesco Guidolin, who will be replaced by Bob Bradley. pic.twitter.com/ezFbt1bxAQ— Swansea City AFC (@SwansOfficial) October 3, 2016
Enski boltinn Mest lesið Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð Sport Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Íslenski boltinn Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Fótbolti Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Fótbolti „Allur heimurinn gæti hlegið að mér“ Sport Sveindís missti af prinsessuleiknum Fótbolti Þingkonan hlaut EM-brons eftir mikla spennu Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Enski boltinn „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Íslenski boltinn Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Sjá meira