Myndavélamarkið hans Ronaldo það 500. á ferlinum Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. desember 2016 14:00
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, skoraði annað mark sinna manna í 2-0 sigri á Club América frá Mexíkó í undanúrslitum heimsmeistarakeppni félagsliða í Japan í morgun. Markið var heldur betur sögulegt. Markið sem portúgalska ofurstjarnan skoraði á annarri mínútu í uppbótartíma leiksins var það 500. sem hann hefur skorað á ferlinum fyrir liðin þrjú sem hann hefur spilað með. Þetta var í fyrsta sinn á ferli Ronaldo sem myndbandsupptaka skar úr um hvort mark hans væri löglegt en verið er að prófa slíka tækni á HM félagsliða eins og sjá má í myndbandinu hér að ofan. Ronaldo er nú búinn að skora 377 mörk í 367 leikjum fyrir Real Madrid eða meira en mark í hverjum leik, hann skoraði 118 mörk í 367 leikjum fyrir Manchester United og fimm mörk í 31 leik fyrir Sporting í Lissabon þegar hann var unglingur. Í heildina eru þetta 500 mörk í félagsliðafótbolta í ekki meira en 689 leikjum. Magnaður árangur hjá þessum ótrúlega leikmanni sem fékk Gullboltann í fjórða sinn á ferlinum í byrjun vikunnar. Hann verður svo líklega kjörinn besti fótboltamaður heims á FIFA-verðlaununum eftir áramót. Við þessi 500 mörk má svo bæta 68 í viðbót í 136 landsleikjum fyrir Portúgal en Ronaldo upplifði æskudrauminn í París í sumar þegar hann varð Evrópumeistari með portúgalska liðinu.RECORD: Cristiano Ronaldo has now scored 500 senior career club goals.Real Madrid (377)Man Utd (118)Sporting Lisbon (5)Legend pic.twitter.com/0HMhePk5UY— Squawka Football (@Squawka) December 15, 2016
Fótbolti Tengdar fréttir Myndbandsdómgæsla notuð í sigri Real Madrid á HM félagsliða Karim Benzema og Cristiano Ronaldo skoruðu sitthvort markið er Evrópumeistararnir komust í úrslitaleikinn. 15. desember 2016 12:35 Mest lesið Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Körfubolti Með þrennu í fyrstu tveimur leikjunum sínum með Dortmund Fótbolti Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti Paris Saint-Germain vann Ofurbikarinn annað árið í röð Fótbolti Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Enski boltinn Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Sjá meira
Myndbandsdómgæsla notuð í sigri Real Madrid á HM félagsliða Karim Benzema og Cristiano Ronaldo skoruðu sitthvort markið er Evrópumeistararnir komust í úrslitaleikinn. 15. desember 2016 12:35