Manchester United kaupir Fílabeinsstrending á 30 milljónir punda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2016 09:30 Eric Bailly getur hoppað eins og hann sýnir hér í baráttu við Cristiano Ronaldo. Vísir/Getty
Jose Mourinho, nýr knattspyrnustjóri Manchester United, er búinn að kaupa sinn fyrsta leikmann eftir að hann tók við á Old Trafford. Sá er 22 ára varnarmaður frá Villarreal. Enskir miðlar segja frá því að Manchester United kaupi Fílabeinsstrendinginn Eric Bailly á um 30 milljónir punda eða um 5,4 milljarða íslenskra króna. BBC er einn þeirra miðla. Eric Bailly fer í læknisskoðun í þessari viku og þá er hægt að ganga endanlega frá kaupunum er félögin eru búin að koma sér saman um kaupverð. Villarreal er að græða vel á Eric Bailly á aðeins átján mánuðum en það keypti miðvörðinn á 4,4 milljónir frá Espanyol í janúar 2014. Hagnaður Villarreal eru því um 25 milljónir punda eða 4,4 milljarðar íslenskra króna. Eric Bailly er 187 sentímetra miðvörður sem hefur þegar spilað fimmtán landsleiki fyrir Fílabeinsströndina og varp Afríkumeistari með liðinu 2015. Bailly á að baki 40 leiki í spænsku úrvalsdeildinni þar af 25 þeirra á nýloknu tímabili. Eric Bailly lék mjög vel með liði Villarreal í vetur en liðið tryggði sér meðal annars sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Bailly er mjög sterkbyggður leikmaður sem lætur finna vel fyrir sér og er öflugur skallamaður. Hann er þó ekki fullskapaður leikmaður og á enn eftir að læra mikið áður en hann verður heimsklassa miðvörður. Líkamlegu hæfileikarnir munu allavega ekki standa í vegi fyrir honum á þeirri leið því hann er bæði hraustur og fljótur. Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic verður mögulega leikmaður númer tvö sem Jose Mourinho fær til United-liðsins en hvorki Zlatan né United hafa staðfest þann þráláta orðróm.Eric Bailly í kapphlaupi við Liverpool-leikmanninn Roberto Firmino í Evrópuleik.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Ótrúleg tölfræði Jokic Körfubolti Enn kvarnast úr liði Blika Íslenski boltinn „Ég mun ekki keppa við Rússa á meðan stríð er í gangi“ Sport Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Jafnt í stórleiknum Fótbolti Spennutryllir eftir tvö burst Sport Jöfnuðu 128 ára gamalt met Enski boltinn Gray hetja Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Sjá meira