Herrera: Alveg eins og við höfum tapað þessum tveimur leikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2016 18:00
Ander Herrera, miðjumaður Manchester United, viðurkennir að tilfinningin eftir síðustu tvo heimaleiki Manchester United liðsins í ensku úrvalsdeildinni sé eins og eftir tapeik þótt að liðið hafi fengið stig í þeim báðum. United-liðið gerði markalaust jafntefli á móti Burnley um helgina og hafði gert 1-1 jafntefli við Stoke City í heimaleiknum á undan. Í báðum leikjum voru United-menn með mikla yfirburði út á velli sem og í fjölda skota á mark. Jafnteflið um helgina þýðir að Manchester United liðið er í áttunda sæti en það hefur ekki hjálpað til að í síðustu tveimur útileikjum hefur liðið aðeins náð í eitt stig af sex mögulegum og ekki náð að skora mark. Þrjú stig af tólf mögulegum í fjórum síðustu deildarleikjum er langt frá því að vera ásættanlegt. Í leiknum á móti nýliðum Burnley var Manchester United með boltann 72 prósent af leiknum og náði alls 37 skotum. Hvert dauðafærið fór hinsvegar forgörðum og liðið náði ekki að landa sigri í síðasta leik sínum í október. United náði því ekki að vinna deildarleik í mánuðinum. „Mér líður alveg eins og við höfum tapað þessum tveimur leikjum. Við stjórnuðum leiknum í 90 mínútum um helgina og það var ótrúlegt að okkur tókst ekki að skora mark,“ sagði Ander Herrera í viðtali við enska fjölmiðla. „Heppnin er ekki með okkur þessa dagana en við verðum bara að halda áfram að spila eins og við gerðum í þessum leik og í leiknum á móti Stoke. Vonandi uppskerum við einhvern tímann sanngjörn úrslit, 5-0 eða 6-0 hefði verið sanngjörn úrslit á móti Burnley,“ sagði Herrera. Það er hægt að sjá myndband frá leiknum í spilaranum hér fyrir ofan. Ander Herrera fékk ekki að klára leikinn á móti Burnley því hann var rekinn af velli með tvö gul spjöld. „Ég beygði hnén í fyrra brotinu því ég vildi ekki sparka í mótherjann. Í seinna brotinu þá rann ég. Ég vil samt ekki kvarta meira því ég vil ekki fá lengra bann,“ sagði Herrera. „Það eina sem ég get sagt er að ég ætlaði ekki að brjóta af mér. Ég er ekki ofbeldisfullur leikmaður. Ég rann bara,“ sagði Herrera.
Enski boltinn Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Balogun fékk að spila en Belgar áfram eftir stjörnuleik Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Forsætisráðherrann hafði áhrif á leiktíma Englands Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira