Þjálfari Albaníu telur sig rétta manninn í starfið hjá enska landsliðinu Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. júlí 2016 19:45 Gianni De Biasi til Englands? vísir/getty
Ítalinn Gianni De Biasi, þjálfari albanska fótboltalandsliðsins, vill verða næsti þjálfari Englands en það er þjálfaralaust eftir að Roy Hodgson sagði upp störfum. Hodgson var ekki lengi að víkja eftir að England tapaði fyrir Íslandi, 2-1, í 16 liða úrslitum Evrópumótsins í Frakklandi en Sam Allardyce, stjóri Sunderland, virðist líklegastur til að taka við af Hodgson eins og staðan er í dag. Mikil umræða er á Englandi um hvort næsti þjálfari eigi að vera Englendingur eða hvort enska knattspyrnusambandið reyni aftur erlendan þjálfara. De Biasi er sextugur Ítali með mikla reynslu en hann hefur þjálfað fjöldan allan af liðum á Ítalíu á borð við Torino, Brescia, Modena og Udinese þar sem hann var í starfi áður en hann tók við Albaníu árið 2011. Hann hefur náð góðum árangri með albanska liðið og kom því í fyrsta sinn á stórmót en það var eitt af fimm nýliðum á Evrópumótinu ásamt Íslandi, Wales, Norður-Írlandi og Slóvakíu. „Það er heiður að nafn mitt sé tengt við ráðningu á nýjum landsliðsþjálfara Englands,“ segir De Biasi í viðtali við The Sun. „Ensku leikmennirnir eru hæfileikaríkir en það þarf að endurskoða liðið almennilega. Ég gæti aldrei hafnað því að taka við enska landsliðinu.“ „Ég er handviss um að ég myndi ná góðum úrslitum með enska liðið og þetta segi ég af mikilli auðmýkt,“ segir Gianni De Biasi.
Enski boltinn Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Fótbolti Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Fótbolti Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Fótbolti Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Fótbolti Fleiri fréttir Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Sjá meira