Arsenal græddi mestan pening af öllum félögum í Evrópu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. október 2016 10:00 Theo Walcott fagnar marki með Arsenal. Vísir/EPA
Arsenal er það lið í evrópskum fótbolta sem tekur inn mestan pening í kassann á sínum heimaleikjum en þetta kemur fram í nýrri úttekt Deloitte. Deloitte hefur farið yfir ársreikninga félaga frá 2014-15 tímabilinu og tekið saman hvað þau græða á sölu miða á leikina í viðbót við það sem selst af mat, drykk og öðrum varningi sem er til sölu á heimaleikjum þeirra. Arsenal tók inn 132 milljónir evra í heimaleikjum sínum 2014-15 eða 16,9 milljarða íslenskra króna. Það gerir um 30 prósent af heildarinnkomu félagsins. Arsenal yfirgaf Highbury fyrir tíu árum og flutti sig yfir á hinn frábæra Emirates-leikvang. Leikvangurinn tekur 60 þúsund manns í sæti og er einstaka vel hannaður þegar kemur að allri þjónustu við gesti. Arsenal græddi þannig meira en spænsku risarnir Real Madrid og Barcelona sem koma í næstu sætum. Real Madrid tók inn 129,8 milljónir evra á heimaleikjum sínum á Santiago Bernabéu en Börsungar höfðu 116,9 milljónir evra í tekjur á heimaleikjum sínum á Camp Nou. Manchester United og Chelsea eru síðan bæði á undan þýska stórliðinu Bayern München. Það vekur athygli að Liverpool græðir meira á heimaleikjum sínum en Manchester City og það mun aðeins aukast nú þegar Liverpool hefur stækkað Anfield-leikvanginn talsvert. Fimm af tíu efstu félögunum spila í ensku úrvalsdeildinni en hinar þjóðirnar sem eiga fulltrúa á topp tíu listanum eru Spánn (2 félög), Þýskaland (2) og Frakkland (1).Félögin sem græddu mest á heimaleikjum sínum 2014-15: 1. Arsenal (Emirates Stadium): 132 milljónir evra 2. Real Madrid (Santiago Bernabéu): 129,8 milljónir evra 3. Barcelona (Camp Nou): 116,9 milljónir evra 4. Manchester United (Old Trafford): 114 milljónir evra 5. Chelsea (Stamford Bridge): 93,1 milljónir evra 6. Bayern München (Allianz Arena): 89,8 milljónir evra 7. Paris Saint-Germain (Parc des Princes): 78 milljónir evra 8. Liverpool (Anfield): 75 milljónir evra 9. Manchester City (Etihad Stadium): 57 milljónir evra 10. Borussia Dortmund (Signal Iduna Park): 54,2 milljónir evra
Enski boltinn Mest lesið Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð Sport Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Íslenski boltinn Sveindís missti af prinsessuleiknum Fótbolti „Allur heimurinn gæti hlegið að mér“ Sport „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Íslenski boltinn Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Fótbolti Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Íslenski boltinn Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Enski boltinn „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ Íslenski boltinn Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Enski boltinn Fleiri fréttir Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Sjá meira