Glæsimark Snodgrass dugði Hull ekki til sigurs Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2016 21:45 Robert Snodgrass fagnar marki sínu. vísir/getty
Hull City og Everton gerðu 2-2 jafntefli í fyrsta leik 19. umferðar í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Hull komst tvisvar yfir í leiknum en það dugði ekki til. Ross Barkley tryggði Everton stig þegar hann jafnaði metin í 2-2 sex mínútum fyrir leikslok. Hull byrjaði leikinn af miklum krafti og náði forystunni strax á 6. mínútu þegar Michael Dawson skoraði sitt þriðja mark í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Hull virtist ætla að fara með 1-0 stöðu inn til búningsbergja en markvörðurinn David Marshall kom í veg fyrir það þegar hann skoraði afar klaufalegt sjálfsmark í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Í upphafi seinni hálfleiks varði Marshall skot Romelus Lukaku í slána. Á 55. mínútu átti Robert Snodgrass svo frábæra aukaspyrnu sem small í samskeytunum á marki Everton. Tíu mínútum síðar tók Snodgrass aðra aukaspyrnu rétt fyrir utan teig og smellti boltanum upp í markhornið. Þetta glæsimark dugði þó Hull ekki til sigurs því Barkley jafnaði metin með skalla eftir fyrirgjöf Leightons Baines á 84. mínútu. Lokatölur 2-2. Með jafnteflinu fór Hull upp í næstneðsta sæti deildarinnar og sendi Swansea City á botninn. Everton er áfram í 7. sætinu, nú með 27 stig.
Enski boltinn Mest lesið Lakers selt fyrir metupphæð Körfubolti Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Íslenski boltinn Messi opnar sig um föðurmissinn: „Veit ekki hvernig ég á að halda áfram“ Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti „Viss um að þetta sé rétta skrefið fyrir feril minn“ Fótbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Fleiri fréttir Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Sjá meira