Zlatan farinn að snúa stuðningsmönnum City Henry Birgir Gunnarsson skrifar 26. október 2016 13:45 Zlatan Ibrahimovic. vísir/getty
Það er heldur betur stórleikur í enska deildabikarnum í kvöld er Manchester-liðin mætast á Old Trafford. Svíinn Zlatan Ibrahimovic hjá Man. Utd er spenntur fyrir kvöldinu en hann þekkir stórleikina á löngum ferli. Hann hefur leikið undir stjórn Pep Guardiola, stjóra Man. City, hjá Barcelona er liðið mætti Real Madrid. Hann hefur einnig tekið þátt í Mílanó-slagnum. Þó svo Man. Utd skjóti púðurskotum þessa dagana þá er Svíinn brattur sem fyrr. „Þetta er nágrannaslagur tveggja liða í sömu borginni. Það vilja öll lið stýra sinni borg og við erum engin undantekning,“ sagði Zlatan. „Ég hef mikla reynslu úr svona leikjum um alla Evrópu. Það hitnar í kolunum í svona leikjum. Ég hef oft staðið uppi sem sigurvegari í þessum leikjum og vonandi gerist það aftur núna.“ Þó svo Man. Utd hafi verið flengt gegn Chelsea um síðustu helgi segir Zlatan að sjálfstraustið sé gott í liðinu. „Við getum ekki breytt úrslitum leikja en við getum gert betur í næsta leik. Við fáum tækifæri til þess gegn City núna. Við trúum á okkur og því sem við erum að gera sem lið. Það er aðalatriðið.“ Zlatan var að lokum spurður að því hvort hann hefði rekist á marga stuðningsmenn City í borginni. „Ég hef hitt marga stuðningsmenn City en þeir urðu stuðningsmenn United eftir að hafa hitt mig.“ Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira