Neville segir að Mata sé orðinn einn mikilvægasti leikmaður United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2016 12:30 Juan Mata. Vísir/Getty
Phil Neville, knattspyrnuspekingur á Sky Sports og fyrrum leikmaður Manchester United, hrósaði Spánverjanum Juan Mata eftir 1-0 sigur Manchester United á Manchester City í enska deildabikarnum í gær. Phil Neville var í þjálfaraliði Manchester United þegar David Moyes keypti Juan Mata frá Chelsea í janúar 2014 og borgaði fyrir hann 37 milljónir punda. Jose Mourinho, sem var þá stjóri Chelsea, seldi Mata sem hafði verið einn helsta stjarna liðsins áður en Portúgalinn tók við. Flestir töldu því líklegt að dagar Mata á Old Trafford væru taldir eftir að Mourinho mætti á Old Trafford. Phil Neville er hinsvegar á þeirri skoðun að Juan Mata sé orðinn einn mikilvægasti leikmaður Manchester United liðsins í dag. „Ég var hér [hjá Manchester United] þegar við keyptum Mata. Hann meiðist aldrei, leggur upp fullt af mörkum, spilar þrjár stöður á vellinum og skorar mikilvæg mörk,“ sagði Phil Neville við Sky Sports. „Ég hélt að hann væri fyrsti maðurinn til að fara þegar Jose kom en hann er þess í stað orðinn einn mikilvægasti leikmaður liðsins,“ sagði Neville. Jamie Carragher var sammála Neville þegar þeir fóru yfir leikinn á Sky Sports. „Hann er búinn að spila 116 leiki fyrir United. Við skoðuðum tölfræðina hans og hann hefur komið að næstum því 50 mörkum í þessum leikjum, skorað 29 og gefið 18 stoðsendingar,“ sagði Jamie Carragher og bætti við: „Stundum held ég að hann fái á sig gagnrýni af því að hjá Man United eru menn vanir því að hafa hraða fljúgandi vængmenn. Hann er tía og hvaða tía hefur mikinn hraða,“ sagði Carragher. Það er hægt að sjá sigurmark Juan Mata frá því í gær hér fyrir neðan.Sigurmark Mata á móti Manchester City
Enski boltinn Tengdar fréttir Mata hetja United í Manchester-slagnum | Sjáðu markið Manchester United náði aðeins að svara fyrir sig eftir skellinn á sunnudaginn og er komið áfram í deildabikarnum. 26. október 2016 20:52 Mourinho: Mata er mér mikilvægari hjá United en hann var hjá Chelsea José Mourinho seldi Juan Mata til Manchester United sem stjóri Chelsea en nú vinnur hann varla leik án hans. 28. september 2016 17:15 Mest lesið Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Handbolti Njarðvík með fjögurra stiga forskot á toppnum Íslenski boltinn Guðmundur í grænt Íslenski boltinn Calvert-Lewin á leið til Leeds Enski boltinn Willum lagði upp sigurmark Birmingham Enski boltinn PSG kom til baka og vann Ofurbikarinn í vítakeppni Fótbolti Jón Daði skoraði fyrsta markið fyrir Selfoss í þrettán ár og Fylkir á botninum Íslenski boltinn Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti Mótherjarnir afsaka sig fyrir fram: „Hvort sem það er leikrit eða ekki“ Fótbolti Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Fótbolti Fleiri fréttir Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Sjá meira
Mata hetja United í Manchester-slagnum | Sjáðu markið Manchester United náði aðeins að svara fyrir sig eftir skellinn á sunnudaginn og er komið áfram í deildabikarnum. 26. október 2016 20:52
Mourinho: Mata er mér mikilvægari hjá United en hann var hjá Chelsea José Mourinho seldi Juan Mata til Manchester United sem stjóri Chelsea en nú vinnur hann varla leik án hans. 28. september 2016 17:15