LIðsfélagi Harðar Björgvins næsti Marcus Rashford? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. október 2016 23:00 Tammy Abraham fagnar með félögum sínum í enska 21 árs landsliðinu. Vísir/Getty
Marcus Rashford sló í gegn með Manchester United á síðasta tímabili en nú telja stuðningsmenn Chelsea að þeir hafa fundið strák sem gæti jafnvel verið Rashford þessa tímabils. Tammy Abraham nokkur hefur nefnilega farið á kostum með bæði félagsliði sínu og landsliði á þessu tímabili. Abraham er í eigu Chelsea en strákurinn er í láni hjá Bristol City þar sem hann spilar með íslenska landsliðsmanninum Herði Björgvini Magnússyni í ensku b-deildinni. Hinn 19 ára gamli Abraham var í fyrsta sinn í byrjunarliði enska 21 árs landsliðsins í gær og þakkaði fyrir með því að skora tvisvar sinnum í 5-0 sigri á Bosníu. Tammy Abraham er einnig markahæsti leikmaður ensku b-deildarinnar en hann hefur skorað 8 mörk í 11 leikjum með liði það sem af er á þessu tímabili. Marcus Rashford hefur lagt það í vana sinn að skora alltaf í sínum fyrsta leik með öllum liðum og skoraði reyndar þrennu í fyrsta leik sínum með 21 árs landsliðinu. Marcus Rashford er fæddur 31. október 1997 en Tammy Abraham kom í heiminn 2. október sama ár eða aðeins 29 dögum fyrr. Rashford er því bæði yngri og kominn lengra en Abraham (í enska A-landsliðinu og með Manchester United í ensku úrvalsdeildinni). Stuðningsmenn Chelsea telja sig engu að síður vera komnir með sinn framtíðarframherja á Brúnni.Sumir stuðningsmenn Chelsea halda því fram að Tammy Abraham sé betri en Marcus Rashford. Þeir geta þó ekki sýnt fram á það fyrr en að strákurinn fer að skora fyrir Chelsea-liðið í ensku úrvalsdeildinni eða að spila fyrir enska A-landsliðið. Það gerist þó líklega ekki á þessu tímabili því Tammy Abraham er á láni hjá Bristol City út þetta tímabil. 12 mörk í 16 leikjum með félagsliði og landsliði er ekki slæm frammistaða. Það ætti að vera full ástæða til að gefa honum tækifæri sem fyrst með liði Chelsea.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Lygilegur viðsnúningur Argentínu Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Fótbolti Fleiri fréttir Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Sjá meira