Wenger: Bendtner er misskilinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. september 2016 08:30 Bendtner og Wenger ræðast við. vísir/getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, vonast til að danski framherjinn Nicklas Bendtner nái sér á strik hjá Nottingham Forest og segir hann misskilinn. Forest tekur á móti Arsenal í 3. umferð enska deildarbikarsins í kvöld. Bendtner mætir þar sínu gamla liði en hann var níu ár í herbúðum Arsenal. Bendtner lék sinn fyrsta leik fyrir Skytturnar þegar hann var aðeins 17 ára en náði aldrei að uppfylla þær væntingar sem til hans voru gerðar. Bendtner fór til Wolfsburg árið 2014 en fann sig ekki hjá þýska liðinu og skoraði aðeins þrjú mörk í 31 deildarleik. Fyrr í þessum mánuði gerði hann svo tveggja ára samning við Forest. „Það kom mér á óvart að Nicklas skyldi semja við Nottingham Forest en á einhverjum tímapunkti þarf hann að koma ferlinum aftur í gang,“ sagði Wenger um sinn gamla lærisvein. „Stundum þarftu bara að fá tækifæri. Við vitum hversu góður hann er en hann þarf að spila,“ bætti Frakkinn við. Hann segir að Bendtner vilji eflaust sanna sig gegn Arsenal. „Auðvitað þarf hann að sanna sig. Hann er að spila á getustigi sem hann er ekki vanur. En hann er nógu auðmjúkur og einbeittur til að sýna sig og sanna á nýjan leik,“ sagði Wenger. Bendtner er þekktur fyrir að hafa mikið álit á sjálfum sér og er af mörgum talinn hrokafullur. Wenger segir að Daninn sé misskilinn. „Fólki telur að hann sé borubrattur en það finnst mér ekki. Hann var stundum óþolinmóður þegar hann var hjá okkur og vonsvikinn að fá ekki tækifæri sem ég skil. Þetta er erfitt - ég ætla ekki að dæma hann,“ sagði Wenger.
Enski boltinn Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Lygilegur viðsnúningur Argentínu Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Fótbolti Fleiri fréttir Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Sjá meira