Fabregas ekki öruggur með sæti í byrjunarliðinu þrátt fyrir mörkin tvö gegn Leicester Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. september 2016 08:15 Fabregas gerði gæfumuninn gegn Leicester. vísir/getty
Þrátt fyrir að Cesc Fabregas hafi skorað tvö mörk fyrir Chelsea í 2-4 sigrinum á Leicester City í 3. umferð enska deildarbikarsins í gær er hann ekki öruggur með sæti í byrjunarliði Lundúnaliðsins. Þetta segir Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea. Fabregas fékk tækifæri í byrjunarliði Chelsea í gær og nýtti það vel. Staðan eftir venjulegan leiktíma á King Power Stadium var 2-2 en Fabregas tryggði Chelsea sigurinn með tveimur mörkum í framlengingunni. Það er þó alls óvíst hvort frammistaðan í gær tryggi honum sæti í byrjunarliðinu gegn Arsenal á laugardaginn. „Ég vil vinna og vel liðið út frá því. Það skiptir ekki máli hvað leikmennirnir heita. Fyrir mér er það mikilvægt að þeir sýni mér að ég gerði rétt með að velja þá,“ sagði Conte eftir sigurinn á Leicester í gær. „Hver einasti leikmaður í hópnum kemur til greina gegn Arsenal. Það eru þrír dagar í leikinn og leikmennirnir hafa tækifæri til að sannfæra mig. „Ég er ánægður fyrir hönd Cesc því hann spilaði vel. Hann hefur líka verið frábær á æfingum. Ég er ánægður með viðhorf hans. Ég vil að það sé samkeppni um sæti í byrjunarliðinu.“ Fabregas hefur ekki enn verið í byrjunarliði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en Conte hefur sett traust sitt á N'Golo Kanté, Nemanja Matic og Oscar í þeim fimm leikjum sem búnir eru.
Enski boltinn Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Segir Svía hafa efni á að tapa fyrir Íslandi Handbolti Fleiri fréttir Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Sjá meira