Upphitun: Nær Mourinho að snúa við gengi United? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. september 2016 08:00
Sjötta umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst í dag og fara átta leikir fram á afar annasömum degi. Hann hefst með stórslag Manchester United og Englandsmeistara Leicester á Old Trafford en Jose Mourinho, stjóri United, er strax kominn í vandræði með lið sitt eftir að hann tapaði þremur leikjum á einni viku. Var það í fyrsta sinn síðan 2002 að lið undir hans stjórn tapaði þremur leikjum í röð í öllum keppnum en þar af voru tveir deildarleikir, gegn Manchester City og Watford. United náði svo að rétta úr kútnum með sigri á Northampton í ensku deildarbikarnum í vikunni. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Swansea eiga erfiðan leik gegn toppliði Manchester City sem hefur enn ekki tapað stigi á tímabilinu. Francesco Guidolin, stjóri Swansea, þykir afar veltur í sessi og hefur Ryan Giggs, fyrrum leikmaður Manchester United og velska landsliðsins, verið orðaður við starfið. Stórleikur dagsins er svo viðureign Arsenal og Chelsea klukkan 16.30. Hitað verður upp fyrir þann leik í myndveri Messunnar á Stöð 2 Sport og hefst hún klukkan 16.10. Gestir Guðmundar Benediktssonar í upphitun að þessu sinni verða Bjarni Guðjónsson og Ingólfur Sigurðsson.Dagskrá Stöðvar 2 Sports: 11.20 Manchester United - Leicester (Sport) 13.50 Liverpool - Hull (Sport) 16.10 Upphitun fyrir Arsenal - Chelsea (Sport) 16.15 Swansea - Manchester City (Sport 4) 16.30 Arsenal - Chelsea (Sport) 18.00 Stoke - WBA (Sport 4) 18.30 Middlesbrough - Tottenham (Sport 2) 18.45 Bournemouth - Everton (Sport) 20.10 Sunderland - Crystla Palace (Sport 2)
Enski boltinn Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Fleiri fréttir Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Sjá meira