„Varnarleikur Chelsea er ömurlegur“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. september 2016 21:45 Theo Walcott fór illa með Chelsea-vörnina. vísir/getty
Chelsea fékk vænan skell í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið heimsótti Arsenal en skyttur Arsene Wengers skoruðu þrjú mörk í fyrri hálfleik og unnu, 3-0. Chelsea er í áttunda sæti deildarinnar eftir tapið með tíu stig og er nú þegar átta stigum frá toppliði Manchester City eftir aðeins sex leiki. Liðið er búið að fá á sig níu mörk í sex leikjum. Tony Cascarino, fyrrverandi framherji Chelsea, lét varnarlínu liðsins heyra það þegar hann gerði leikinn upp á Sky Sports en honum finnst enginn í henni vera að standa sig. John Terry er meiddur og hafa því Gary Cahill og David Luiz spilað sem miðverðir með Branislav Ivanovic og César Azpilicueta í bakvarðarstöðunum. Cahill gerðist sekur um slæm mistök í leiknum sem urðu til þess að Arsenal komst í 1-0.„Varnarleikur Chelsea er ömurlegur. Leikmenn eru að spila langt undir eðlilegri getu,“ sagði Cascarino eftir leikinn. „Það má setja spurningamerki við alla varnarlínuna. Azpilicueta er ekki búinn að spila nógu vell og Ivanovic er búinn að vera slakur í 18 mánuði. Cahill á í virkilegum vandræðum með að vera númer eitt í varnarleiknum og David Luiz spilar svo aftarlega að hann gerir alla réttstæða.“ „Það býr til pláss fyrir aðra. Hvað er það versta sem þú getur get á móti Arsenal? Gefa liðinu pláss og það var það sem Chelsea gerði. Svo lítur Thibaut Courtois út fyrir að nenna þessu ekki,“ segir Tony Cascarino.
Enski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu öll mörk helgarinnar í enska boltanum og Pepsi-deildinni Það var mikið fjör í boltanum á bæði laugardag og sunnudag. 26. september 2016 10:02 Mest lesið Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð Sport Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Íslenski boltinn Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Fótbolti „Allur heimurinn gæti hlegið að mér“ Sport Sveindís missti af prinsessuleiknum Fótbolti Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Enski boltinn Þingkonan hlaut EM-brons eftir mikla spennu Sport „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Íslenski boltinn Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Fótbolti Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Sjá meira
Sjáðu öll mörk helgarinnar í enska boltanum og Pepsi-deildinni Það var mikið fjör í boltanum á bæði laugardag og sunnudag. 26. september 2016 10:02