Owen: Fór til Man Utd því Liverpool vildi mig ekki Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. september 2016 13:30 Owen skoraði 158 mörk í 297 leikjum fyrir Liverpool. vísir/getty
Michael Owen segir að hann hafi farið til Manchester United sumarið 2009 því Liverpool, uppeldisfélag hans, vildi ekki fá hann. Owen skoraði 158 mörk í 297 leikjum fyrir Liverpool áður en hann fór til Real Madrid sumarið 2004. Í nýútkominni bók, Ring of Fire, greinir hann frá því að hvert einasta sumar eftir að hann fór frá Liverpool hafi hann dreymt um að snúa aftur á Anfield. „Hvert einasta sumar ræddi ég við Carra [Jamie Carragher] um að finna leið til að koma mér aftur til Liverpool,“ segir Owen í bókinni. Það varð þó aldrei neitt af endurkomu hans, vegna ýmissa ástæðna. „Alltaf þegar ég var laus var Liverpool með of marga framherja. Og þegar Liverpool vildi fá mig var ég meiddur. Á endanum var ég ekki sami leikmaður og ég hafði verið og þeir höfðu einfaldlega ekki áhuga á mér. Ég var ekki nógu góður,“ segir Owen sem fór til Newcastle United frá Real Madrid 2005. Owen lék í fjögur ár með Newcastle en hann fór frá liðinu eftir að það féll vorið 2009. Owen vildi snúa aftur til Liverpool en endaði hjá erkifjendunum í Manchester United. „Þegar það var ljóst að [Rafa] Benítez vildi ekki semja við mig talaði ég aftur við [Sir Alex] Ferguson. Hann hafði mikinn áhuga á að fá mig,“ sagði Owen sem spilaði lítið hjá United og endaði svo ferilinn hjá Stoke tímabilið 2012-13.Owen fékk lítið að spila hjá Manchester United.vísir/getty
Enski boltinn Mest lesið Ísland - Króatía | Þurfa að skáka Degi í stórleik á EM Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti Svona var EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Handbolti Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Handbolti „Hann gæti gert fullt af sóknum léttari“ Handbolti Mátti ekki hlaupa maraþonhlaup með barnið sitt á sér Sport Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti „Ef ég hitti Dag þá mun ég knúsa hann“ Handbolti Fleiri fréttir Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Sjá meira