Enski boltinn

Arsenal tilbúið að lána Wilshere

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wilshere gæti farið á láni frá Arsenal.
Wilshere gæti farið á láni frá Arsenal. vísir/getty
Arsenal er tilbúið að leyfa Jack Wilshere að fara á láni til að fá meiri spiltíma. Þetta herma heimildir Sky Sports.

Wilshere hefur ekki enn byrjað leik fyrir Arsenal á þessu tímabili en hann hefur glímt við erfið meiðsli á undanförnum árum.

Wilshere var ekki valinn í enska landsliðið fyrir leikinn gegn Slóvakíu í undankeppni HM 2018.

Sam Allardyce, nýr landsliðsþjálfari Englands, sagði að miðjumaðurinn þyrfti að spila reglulega með sínu félagsliði til að vinna sér sæti í landsliðinu á nýjan leik.

Wilshere, sem er 24 ára, hefur leikið með Arsenal allan sinn feril ef frá er talinn seinni hluti tímabilsins 2009-10 þegar hann var lánaður til Bolton Wanderers.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×