Leiðinlegur stöðugleiki Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. ágúst 2016 06:00
Arsenal endaði í 2. sæti á síðasta tímabili en liðið hafði ekki endað ofar í ensku úrvalsdeildinni frá 2005. Skytturnar voru samt heilum 10 stigum á eftir Leicester og skutust upp í 2. sætið í lokaumferðinni eftir skelfilegan endasprett erkióvinanna í Tottenham. Arsenal hefur ekki unnið Englandsmeistaratitilinn síðan 2004 og biðin eftir þeim næsta hefur tekið á stuðningsmenn Arsenal sem eru margir hverjir orðnir langþreyttir á ástandinu. Það er margt verra en að vera alltaf í efstu fjórum sætum ensku úrvalsdeildarinnar, fastagestir í Meistaradeild Evrópu og spila yfirleitt góðan fótbolta. En stuðningsmenn Arsenal vilja meira og spjótin hafa beinst að Arsene Wenger, sem hefur verið við stjórnvölinn hjá félaginu frá 1996. Granit Xhaka er eini leikmaðurinn sem hefur bæst við leikmannahóp Arsenal í sumar en það er hætt við að það sé ekki nóg. Wenger er í vandræðum vegna meiðsla miðvarða liðsins og þá hefur honum ekki tekist að landa framherja. Á meðan hafa helstu mótherjarnir verið duglegir á félagaskiptamarkaðinum og eru sterkari en á síðasta tímabili. Það er mikið af góðum fótboltamönnum í Arsenal og nokkrir þeirra (Granit Xhaka, Aaron Ramsey og Mesut Özil) spiluðu vel á EM. Það vantar ekki mikið upp á til að Arsenal geti barist af alvöru um þann stóra en það er spurning hvort tregða Wengers og félagsins til að eyða háum fjárhæðum sé að halda aftur af Skyttunum. Stórleikur Arsenal og Liverpool verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og Stöð 2 Sport 2 HD í dag.
Enski boltinn Mest lesið Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Handbolti Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Handbolti Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Enski boltinn Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Fótbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Sjá meira