Pogba kominn til Manchester United | Dýrasti leikmaður heims Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. ágúst 2016 00:01 Paul Pogba í búningi Manchester United. Mynd/Twitter-síða Manchester United
Manchester United tilkynnti á heimasíðu sinni í kvöld að félagið væri búið að semja við franska landsliðsmanninn Paul Pogba til næstu fimm ára. Pogba kemur frá Juventus á Ítalíu sem staðfestir að hann hafi verið seldur fyrir 105 milljónir evra en mögulegt er að fimm milljónir bætast við ef ákveðin skilyrði verða uppfyllt. Þetta gera samanlagt 110 milljónir evra, jafnvirði 14,6 milljarða króna. Pogba slær þar með við kaupum Real Madrid á Gareth Bale fyrir þremur árum en spænska liðið greiddi þá 100 milljónir evra fyrir Walvesverjann. Félagaskipti Pogba hafa verið yfirvofandi í allt sumar en í kvöld fékkst það loksins staðfest að þessi 23 ára kappi væri kominn aftur á Old Trafford, þar sem hann lék sem táningur frá 2009 til 2012. „Ég er hæstánægður með að vera kominn til United,“ sagði Pogba. „Það er félag sem hefur ávallt átt sér sess í mínu hjarta og ég hlakka mikið til að byrja að vinna með Jose Mourinho.“ Pogba lék með Juventus í fjögur ár, alls 124 leiki og skoraði í þeim 28 mörk. Hann á 38 landsleiki að baki og og var í lykilhlutverki þegar Frakkland komst í úrslitaleik EM í sumar. „Hann er 23 ára gamall og á nú tækifæri á að eigna sér stöðu sína í liðinu í langan tíma. Hann er ungur og mun halda áfram að bæta sig. Hann á möguleika á að vera við hjarta þessa félags í áratug eða lengur,“ sagði Jose Mourinho. XHome. #POGBACK pic.twitter.com/N0irgKbuv5— Manchester United (@ManUtd) August 8, 2016 REUNITED: https://t.co/VFkDJ05zuf #POGBACK https://t.co/y68rpT0dob— Manchester United (@ManUtd) August 8, 2016 Are you ready? #POGBACK https://t.co/Eihc6xTBsD— Manchester United (@ManUtd) August 8, 2016
Enski boltinn Mest lesið Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Íslenski boltinn Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Fótbolti Sigurbjörn í sérflokki og tveir þjálfarar toppa formann KSÍ á tekjulistanum Sport Alfreð hrósað fyrir metkaup á einum heitasta leikmanni norsku deildarinnar Fótbolti Sjáðu samskipti dómarans í úrslitaleik HM: Bað Messi um að róa Paredes niður Fótbolti Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Íslenski boltinn Heimsmeistarinn óvænt úr leik í fyrstu umferð Sport Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Glænýtt gólf fyrir fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Handbolti Fleiri fréttir Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Sjá meira