Telegraph-skjölin: Aðstoðarþjálfari Barnsley þáði mútur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. september 2016 09:02 Tommy Wright tók við mútugreiðslu. vísir/getty
The Telegraph stóð Tommy Wright, aðstoðarþjálfara Barnsley, að því að þiggja mútur. Jimmy Floyd Hasselbaink, knattspyrnustjóri QPR, og Massimo Cellino, eigandi Leeds United, eru einnig í vandræðum vegna uppljóstrana blaðsins.Sem frægt er orðið hætti Sam Allardyce sem landsliðsþjálfari Englands vegna uppljóstrana The Telegraph. Blaðið birti á vef sínum myndband þar sem Allardyce sést samþykkja 400.000 punda greiðslu fyrir að aðstoða austurlenska viðskiptajöfra, sem voru í raun blaðamenn The Telegraph í dulargervi, að fara á svig við reglur enska knattspyrnusambandsins um kaup á leikmönnum í eigu þriðja aðila. Eignarhald þriðja aðila á leikmönnum hefur verið bannað á Englandi frá 2008. Líkt og í tilfelli Allardyce villtu blaðamenn The Telegraph á sér heimildir og þóttust vera í forsvari fyrir fyrirtæki í Austurlöndum fjær þegar þeir hittu Wright. Aðstoðarþjálfarinn samþykkti að hjálpa þeim að kaupa og selja leikmenn gegn greiðslu. Wright var gripinn glóðvolgur en það náðist á myndband þegar hann tók við umslagi sem innihélt 5000 pund. Þetta átti sér stað á hóteli í Leeds 11. ágúst síðastliðinn. Wright var leystur undan störfum hjá Barnsley eftir að The Telegraph gerði félaginu viðvart um mútugreiðsluna sem hann þáði. Engar líkur eru taldar á því að Barnsley hafi vitað um samskipti Wright við fyrirtækið né mútugreiðsluna. Hasselbaink er einnig í vondum málum eftir að hann samþykkti að hjálpa sama „fyrirtæki“ að ræða við austurlenska fjárfesta. Hollendingurinn var tilbúinn að fljúga til Austurlanda fjær til að tala við fjárfesta fyrir 55.000 pund skiptið. Hann virtist einnig opinn fyrir því að kaupa leikmenn í eigu fyrirtækisins þrátt fyrir hagsmunaárekstra. Hasselbaink hefur þvertekið fyrir að hafa gert nokkuð rangt. Loks var Cellino staðinn að því að ræða við austurlenska viðskiptajöfra um mögulegar leiðir framhjá reglum enska knattspyrnusambandsins um eignarhald þriðja aðila á leikmönnum. Í frétt The Telegraph segir að uppljóstranir dagsins auki líkurnar á að óháð rannsókn eða lögreglurannsókn verði sett af stað.
Enski boltinn Tengdar fréttir Stóri Sam er ekki hættur og segist hafa verið að gera vini sínum greiða Sam Allardyce, fráfarandi þjálfari enska landsliðsins í fótbolta, ætlar að snúa aftur í þjálfun. 28. september 2016 08:44 Stóri Sam í vandræðum og gæti misst starfið Sam Allardyce, landsliðsþjálfari Englands í fótbolta, var gripinn á falda myndavél ræða ansi vafasama hluti. 26. september 2016 23:07 Hver tekur við enska landsliðinu? | Líklegustu kostirnir Aðeins 68 dögum eftir að hafa ráðið Sam Allardyce sem landsliðsþjálfara er enska knattspyrnusambandið aftur í þjálfaraleit. 28. september 2016 13:30 María mismælti sig við framburð á Sam Allardyce og Southgate: „Ég á mér engar málsbætur“ Nafnið Sam Allardyce hefur mikið verið í fjölmiðlum um allan heim síðasta sólahringinn. 28. september 2016 11:30 Starf Allardyce hangir á bláþræði Forystumenn enska knattspyrnusambandsins að ræða nú um hvort það eigi að segja Sam Allardyce upp störfum. 27. september 2016 13:45 Allardyce hneykslið: Fundað um framtíð Stóra Sam Enski landsliðsþjálfarinn er í vondum málum eftir að nást á falda myndavél vera tilbúinn að beygja reglurnar fyrir myndarlega upphæð. 27. september 2016 07:45 Shearer: Enska landsliðið er aðhlátursefni Alan Shearer, fyrrverandi landsliðsfyrirliði Englands, segir að enska landsliðið sé aðhlátursefni í fótboltaheiminum eftir að Sam Allardyce hætti sem landsliðsþjálfari eftir aðeins 67 daga í starfi. 28. september 2016 07:15 Fyrrverandi formaður FA um Stóra Sam: „Hann var heimskur“ Sam Allardyce þurfti að segja af sér eftir aðeins 67 daga í starfi þjálfara enska landsliðsins í fótbolta. 28. september 2016 15:45 Stóri Sam segist iðrast gjörða sinna Eins og fram kom á Vísi fyrir skemmstu er Sam Allardyce hættur sem þjálfari enska landsliðsins í fótbolta. Allardyce entist aðeins 67 daga í draumastarfinu. 27. september 2016 19:30 Stóra Sam hrósað fyrir hraustlega hvítvínsdrykkju Þó svo græðgin hafi orðið Sam Allardyce að falli þá hrósa netverjar honum í hástert fyrir einstaka hvítvínsdrykkju. 28. september 2016 13:00 Allardyce hættur eftir 67 daga í starfi Sam Allardyce er hættur sem þjálfari enska landsliðsins í fótbolta eftir aðeins 67 daga í starfi. 27. september 2016 18:55 Mest lesið Ísland - Haítí | Takast á við HM-fara Fótbolti Fyrrverandi eiginkonan hefur áhyggjur af Tiger Golf Ópíóðar í vasa Woods sem segist hafa verið í símanum Golf Fékk starfið sem Guðmundur var orðaður við Handbolti Úrslit Extra-leikanna: „Djöfull er ég pirraður og svekktur“ Sport Missti stjórn á yfir þrjú hundruð kílómetra hraða Formúla 1 „Erum heppin að Tiger Woods hafi ekki drepið einhvern“ Golf Var eitrað fyrir leikmönnum Sporting? „Þetta var einhver holræsislykt“ Handbolti Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handbolti Skór Rúnars upp í hillu Handbolti Fleiri fréttir De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Þrír af hverjum fjórum stuðningsmönnum ósáttir við VAR Biðja knattspyrnukonur afsökunar Enska landsliðskonan missti fóstur Tottenham sagt vilja fá De Zerbi sem nýjan stjóra Arsenal-stjörnurnar yfirgefa landslið sín hver á fætur öðrum Tudor hættir störfum hjá Tottenham Yfirmaður hjá Bayern hæðist að Liverpool Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham Átta leikmenn yfirgefa enska landsliðshópinn City fór langt með að tryggja titilinn í stórsigri gegn United Óvænt byrjunarlið hjá enska landsliðinu í kvöld Leicester City tapaði næstum því tólf milljörðum á einu tímabili „Salah gæti spilað í sjö ár í viðbót“ Roy Hodgson snýr óvænt aftur í boltann 78 ára gamall Rodri daðrar opinberlega við Real Madrid Stjóri í leyfi út tímabilið eftir andlát nýfædds sonar Liverpool-goðsögn greind með heilabilun Samfélagsskjöldurinn þarf að víkja af Wembley fyrir The Weeknd Tíu flottustu mörk Salah í enska boltanum Finnst Salah vera meiri goðsögn í ensku úrvalsdeildinni en Ronaldo Stuðningsmaður Man. United missir sætið sitt: „Ég er hjálparvana og vonlaus“ Pochettino segist sakna enska boltans Salah yfirgefur Liverpool eftir tímabilið PSG vill auðvelda sér lífið fyrir Liverpool-leikinn Úr fernu yfir í einn bikar: „Hugsa með hryllingi til þess hvað Barcelona gæti gert Arsenal“ Gordon: „Sunderland ekkert sérstaklega góðir miðað við Newcastle“ Sjá meira
Stóri Sam er ekki hættur og segist hafa verið að gera vini sínum greiða Sam Allardyce, fráfarandi þjálfari enska landsliðsins í fótbolta, ætlar að snúa aftur í þjálfun. 28. september 2016 08:44
Stóri Sam í vandræðum og gæti misst starfið Sam Allardyce, landsliðsþjálfari Englands í fótbolta, var gripinn á falda myndavél ræða ansi vafasama hluti. 26. september 2016 23:07
Hver tekur við enska landsliðinu? | Líklegustu kostirnir Aðeins 68 dögum eftir að hafa ráðið Sam Allardyce sem landsliðsþjálfara er enska knattspyrnusambandið aftur í þjálfaraleit. 28. september 2016 13:30
María mismælti sig við framburð á Sam Allardyce og Southgate: „Ég á mér engar málsbætur“ Nafnið Sam Allardyce hefur mikið verið í fjölmiðlum um allan heim síðasta sólahringinn. 28. september 2016 11:30
Starf Allardyce hangir á bláþræði Forystumenn enska knattspyrnusambandsins að ræða nú um hvort það eigi að segja Sam Allardyce upp störfum. 27. september 2016 13:45
Allardyce hneykslið: Fundað um framtíð Stóra Sam Enski landsliðsþjálfarinn er í vondum málum eftir að nást á falda myndavél vera tilbúinn að beygja reglurnar fyrir myndarlega upphæð. 27. september 2016 07:45
Shearer: Enska landsliðið er aðhlátursefni Alan Shearer, fyrrverandi landsliðsfyrirliði Englands, segir að enska landsliðið sé aðhlátursefni í fótboltaheiminum eftir að Sam Allardyce hætti sem landsliðsþjálfari eftir aðeins 67 daga í starfi. 28. september 2016 07:15
Fyrrverandi formaður FA um Stóra Sam: „Hann var heimskur“ Sam Allardyce þurfti að segja af sér eftir aðeins 67 daga í starfi þjálfara enska landsliðsins í fótbolta. 28. september 2016 15:45
Stóri Sam segist iðrast gjörða sinna Eins og fram kom á Vísi fyrir skemmstu er Sam Allardyce hættur sem þjálfari enska landsliðsins í fótbolta. Allardyce entist aðeins 67 daga í draumastarfinu. 27. september 2016 19:30
Stóra Sam hrósað fyrir hraustlega hvítvínsdrykkju Þó svo græðgin hafi orðið Sam Allardyce að falli þá hrósa netverjar honum í hástert fyrir einstaka hvítvínsdrykkju. 28. september 2016 13:00
Allardyce hættur eftir 67 daga í starfi Sam Allardyce er hættur sem þjálfari enska landsliðsins í fótbolta eftir aðeins 67 daga í starfi. 27. september 2016 18:55