Tottenham fyrsta liðið sem sigrar City undir stjórn Guardiola Kristinn Páll Teitsson skrifar 2. október 2016 15:00
Tottenham vann öruggan 2-0 sigur á Manchester City á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í dag en þetta var fyrsta tap Manchester City undir stjórn Pep Guardiola. Með sigrinum lyfti Tottenham sér upp í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sautján stig, aðeins stigi á eftir Manchester City á toppi deildarinnar. Jafnframt er Tottenham eina lið deildarinnar sem hefur ekki enn tapað leik. Aleksandar Kolarov, bakvörður Manchester City, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 9. mínútu leiksins er boltinn fór af honum eftir fyrigjöf Danny Rose og í netið, óverjandi fyrir Claudio Bravo í marki gestanna. Tottenham var sterkari aðilinn allan leikinn og náði Dele Alli að bæta við marki á 37. mínútu fyrir Tottenham eftir góðan undirbúning Son Heung-Min. Heimamenn fengu sannkallað draumafæri til að gera út um leikinn á 65. mínútu þegar Alli krækti í vítaspyrnu en Erik Lamela sem krafðist þess að taka spyrnuna lét Bravo verja frá sér. City-menn ógnuðu marki Tottenham nokkrum sinnum á seinasta hálftíma leiksins en náðu ekki að koma boltanum framhjá Hugo Lloris. Lauk leiknum því með sigri Tottenham sem hefur unnið fimm leiki og gert tvö jafntefli í fyrstu sjö leikjum tímabilsins.
Enski boltinn Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Donni þarf líka að fara í aðgerð Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Alfreð þurfti að breyta plönum hratt fyrir stund hefndar Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Fleiri fréttir Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Sjá meira