Hvert fer Joe Hart? | Gunnleifur svarar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. ágúst 2016 13:44 Hvar endar Joe Hart? vísir/getty
Joe Hart, markvörður enska landsliðsins, er í erfiðri stöðu hjá Manchester City eftir að félagið keypti Claudio Bravo frá Barcelona. Þetta segir Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks og stuðningsmaður Man City.City gekk frá kaupunum á Bravo í gær en með komu hans eru dagar Harts hjá félaginu líklega taldir. Hann hefur þó ekki langan tíma til að finna sér nýtt félag áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin. „Það er ekki margt í boði fyrir hann í ensku úrvalsdeildinni. Það eru öll lið búin að manna þessa mikilvægustu stöðu. Ef hann fer ekki í glugganum núna verður hann þriðji markvörður hjá Man City,“ sagði Gunnleifur í samtali við Vísi í dag.Gunnleifur og félagar í Breiðabliki mæta Stjörnunni í Pepsi-deild karla á morgun.vísir/hanna„Þetta er rosalega erfitt fyrir markvörð að komast að hjá stóru félagi svona seint í glugganum. Hann er búinn að vera lengi hjá Man City og vill væntanlega vera hjá félagi sem er að vinna titla,“ bætti Gunnleifur við en Hart kom til Man City frá Shrewsbury Town árið 2006. Hart hefur verið orðaður við ýmis lið á undanförnum dögum, þ.á.m. Bítlaborgarliðin Liverpool og Everton. „Liverpool er búið að kaupa [Loris] Karius, [Alex] Manninger og eru með þrjá frambærilega markverði. Everton fékk Maarten Stekelenburg sem fór á kostum í fyrstu tveimur leikjunum. „Þessi lið eru ekki beint að leita að markverði en ef Hart er borinn saman við þessa fjóra markverði, þá stendur hann þeim framar,“ sagði Gunnleifur en lið eins og Sunderland og West Ham hafa einnig verið nefnd til sögunnar.Man City hefur farið vel af stað undir stjórn Peps Guardiola.vísir/gettyHart hefur einnig verið orðaður við lið á meginlandinu eins og Borussia Dortmund og Paris Saint-Germain. „Hart getur spilað á háu getustigi. Það væri frábært fyrir hann að fara til PSG. [Kevin] Trapp er ekki alveg nógu góður fyrir PSG og ég held að Hart sé betri kostur en hann,“ sagði Gunnleifur sem telur að það sé eflaust margt að gerast bak við tjöldin. „Hart hefur örugglega marga möguleika. Það er bara spurning hvort hann velji þann rétta. Varðandi enska landsliðið og hans feril hefur hann varla efni á því að bíða fram í janúar. Mér finnst líklegra en ekki að hann fari og finna sér nýtt félag,“ sagði Gunnleifur.Claudio Bravo varð Suður-Ameríkumeistari með Síle í fyrra og í ár.vísir/gettyEn hvað finnst honum, sem markverði og stuðningsmanni, um þessi markvarðaskipti hjá Man City? „Ég hef aldrei verið rosalegur aðdáandi enskra markvarða almennt. Og þó svo að Joe Hart hafi unnið titla með Man City treysti ég Pep Guardiola alveg til að taka rétta ákvörðun,“ sagði Gunnleifur. „Hann er með mjög ákveðinn leikstíl sem Hart hentar ekki inn í. Claudio Bravo hentar aftur á móti fullkomlega í þennan leikstíl þar sem markvörðurinn tekur þátt í uppspilinu. Þetta er samt pínu dapurt þar sem Joe Hart hefur verið svo lengi hjá City.“ Claudio Bravo leikur væntanlega sinn fyrsta leik fyrir Man City á sunnudaginn þegar liðið tekur á móti West Ham United í 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Klúðraði gullgreininni sinni: „Ég er enn í áfalli“ Sport „Enginn vildi að ég myndi vinna“ Sport „Ég hélt ég myndi deyja“ Enski boltinn Fótboltaþjálfari og þrjú börn hans létust í jólafríinu Fótbolti Hetjuleg barátta dugði ekki gegn heimsmeisturunum Handbolti Dagskráin: Mini Doc stýrir Doczone, Lokasóknin og HM í pílu Sport Senda samúðarkveðjur eftir að nánir vinir Joshua létust í banaslysinu Sport Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Enski boltinn Jokic lá þjáður eftir og tímabilið í hættu Körfubolti „Fróðari menn segja að maður eigi ekki að láta tilfinningarnar ráða“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Fróðari menn segja að maður eigi ekki að láta tilfinningarnar ráða“ „Ég hélt ég myndi deyja“ Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Vildi ekki láta undan pressu frá fjölmiðlamönnum Man Utd samdi við fyrrum liðsfélaga Glódísar Perlu hjá Bayern Gefur í skyn að Arsenal opni veskið í janúar „Einn mesti hugsuðurinn í boltanum“ Semenyo vill að allt verði klárt fyrir nýársdag „Knattspyrnustjórar eru ekki töframenn“ Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Skynjar stress hjá Arsenal Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjá meira