Enski boltinn

Gazza viðurkennir að hafa áreitt fyrrum kærustu og lamið ljósmyndara

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Líf Gascoigne hefur alla tíð verið skrautlegt.
Líf Gascoigne hefur alla tíð verið skrautlegt. vísir/getty
Enska knattspyrnugoðsögnin Paul Gascoigne var í réttarsal í morgun vegna tveggja mála.

Hann hefur verið ákærður fyrir að áreita fyrrum kærustu sína sem og að hafa ráðist á ljósmyndara. Gazza játaði sig sekan í báðum málum.

Hluti af áreitinu í garð Amöndu Thomas voru tíst þar sem hann fór ekki fögrum orðum um hana.

Er Gazza réðst á ljósmyndarann þá eyðilagði hann meðal annars gleraugun hans sem kostuðu 40 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×