Erlent

Byrjar þegnskylduvinnu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Pistorius var fundinn sekur um að hafa orðið Reevu Steenkamp að bana. Hann var hins vegar ekki fundinn sekur um morð að yfirlögðu ráði.
Pistorius var fundinn sekur um að hafa orðið Reevu Steenkamp að bana. Hann var hins vegar ekki fundinn sekur um morð að yfirlögðu ráði. NordicPhotos/Getty
Spretthlauparinn Oscar Pistorius er byrjaður að sinna samfélagsþjónustu. Hann mætti á lögreglustöð á laugardaginn til þess að fá fyrirmæli um hvernig vinnunni skyldi háttað. Það var í fyrsta sinn sem Pistorius sást opinberlega eftir að hann var látinn laus úr fangelsi fyrir mánuði.

Pistorius var fundinn sekur um að hafa orðið unnustu sinni, Reevu Steenkamp, að bana árið 2013. Samhliða samfélagsþjónustunni verður Pistorius í stofufangelsi á heimili frænda síns í bænum Pretoria. Hann má ekki yfirgefa heimilið nema í sérstökum tilfellum, til dæmis til þess að sækja kirkju eða sinna samfélagsþjónustunni.

Pistorius var ekki dæmdur fyrir morð að yfirlögðu ráði og hlaut því einungis fimm ára dóm. Saksóknarar hafa áfrýjað dómnum og vilja þyngri refsingu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×