Manchester United vill ólmt fá Schneiderlin Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. júní 2015 10:30 Morgan Schneiderlin vill fara. vísir/getty
Svo virðist sem annað árið í röð sé Southampton að missa sína bestu leikmenn frá sér. Dýrlingarnir þurftu að horfa á eftir Dejan Lovren, Rickie Lambert, Luke Shaw, Calum Chambers og Adam Lallana á síðustu leiktíð en stóðu sig engu að síður frábærlega og voru lengi í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Sky Sports greindi frá því í morgun að Liverpool færist nær því að ganga frá kaupum á hægri bakverðinum Nathaniel Clyne og þá er talið ansi líklegt að miðjumaðurinn Morgan Schneiderlin sé einnig á förum.Samkvæmt heimildum Sky Sports vill Manchester United ólmt fá franska miðjumanninn í sínar raðir, en hann á í viðræðum við Dýrlingana þessa dagana þar sem hann biður þá um að sleppa sér lausum. Southampton mun að öllum líkindum selja Frakkann í sumar eftir að halda honum nánast í hlekkjum í fyrra þegar hann vildi ólmur komast til stærra liðs eins og aðrir liðsfélagar hans. Manchester United þarf að borga að minnsta kosti 25 milljónir punda fyrir Schneiderlin, að því fram kemur í frétt Sky Sports. Frakkinn kom til Southampton frá Strasbourg 2008 og spilaði með Dýrlingunum í B og C-deildinni áður en liðið komst upp í efstu deild 2012. Hann hefur verið einn af betri miðjumönnum deildarinnar undanfarin misseri og jafnan sá leikmaður sem kemst inn í flestar sendingar mótherjanna og þá vinnur hann mikið af tæklingum. Manchester United fær samkeppni frá Arsenal í baráttunni um Frakkann, ef marka má fréttir enskra miðla undanfarna daga, en Tottenham er ekki lengur í baráttunni þar sem Schneiderlin mun aðeins yfirgefa Southampton fyrir lið sem er í Meistaradeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira