John Barnes mætir á árshátíð Liverpool-klúbbsins í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2015 14:58 John Barnes. Vísir/Getty
Árshátíð Liverpoolklúbbsins á Íslandi verður haldin 14. mars næstkomandi og venju samkvæmt er heiðursgesturinn fyrrum leikmaður Liverpool. Að þessu sinni er það John Barnes sem mætir til Íslands en hann lék með Liverpool á árunum 1987 til 1997. Þetta kemur fram á heimasíðu Liverpoolklúbbsins á Íslandi. John Barnes varð enskur meistari með Liverpool 1988 og 1990 og var bæði tímabilin valinn knattspyrnumaður ársins í Englandi. 1988 var hann einnig valinn bestur af leikmönnum deildarinnar.Margir telja að Barnes hafi skorað fallegasta markið í sögu enska landsliðsins gegn Brasilíu á Maracana-vellinum árið 1984. John Barnes lék 314 deildarleiki með Liverpool á ferlinum og skoraði í þeim 84 mörk. Hann var enskur landsliðsmaður og spilaði 79 A-landsleiki frá 1983 til 1995. Það var Kenny Dalglish sem keypti John Barnes frá Watford fyrir 900 þúsund pund í júní 1987 og þetta voru ein af bestu kaupunum í sögu félagsins. Árið 2006 var John Barnes kosinn fimmti besti leikmaður Liverpool í sögunni af stuðningsmönnum félagsins en á undan honum voru þeir Kenny Dalglish, Steven Gerrard, Ian Rush og Robbie Fowler. Robbie Fowler kom einmitt á árshátíð Liverpoolklúbbsins á Íslandi í fyrra.Hér að neðan má sjá Barnes fara á kostum með hljómsveitinni New Order þegar lagið World in Motion var tekið upp í aðdraganda HM 1990 á Ítalíu.
Enski boltinn Mest lesið Stjarnan játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti „Það er hrikalegt að sjá þetta“ Íslenski boltinn Lækkaði launin til að upplifa drauminn Enski boltinn Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Íslenski boltinn Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum Íslenski boltinn Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Íslenski boltinn Fengu þrjá á lokadegi Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn