Einungis konur í fyrirhugaðri tunglferð Rússa Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. október 2015 23:46 Konurnar verða undir vökulu auga lækna og annarra sérfræðinga meðan á tilraununum stendur. Vísir/Getty
Hópur sex rússneskra kvenna mun eyða næstu átta sólarhringum í tilraunageimfari en þær undirbúa sig nú af kappi fyrir fyrirhugaða geimferð Rússa til tunglsins árið 2029. Standist konurnar þrekraunina verða þær skrefinu nær því að manna fyrstu tunglferðina í sögunni sem einungis hefur verið skipuð konum. Að sögn þeirra sem standa að verkefninu er ætlunin að kanna „andlega og líkamlega getu kvenlíkamans“ til að takast á við þá krafta sem verka á skrokkinn í geimnum. Konunum verður hleypt út úr tilraunafarinu fimmtudaginn 5. nóvember en haft er eftir Sergei Ponomarev, stjórnanda verkefnisins, á vef the Guardian að honum muni þykja áhugavert að sjá hvernig konunum mun koma saman – „og hvernig þeim mun takast að leysa verkefnin um borð. Við höfum trú á því að konur séu ekki einungis jafnokar karla í geimnum heldur jafnvel betri,“ sagði Ponomarev í dag.Rússar brautryðjendur í geimnum Sovétríkin sendu fyrstu konuna í geiminn, Valentinu Tereshkvou, en hún eyddi þremur dögum á sporbaug um jörðina árið 1963. Tveimur árum áður hafði annar Sovétríkjamaður, Yuri Gagarin, rutt geimferðabrautina. Þá er ótalin sovéska tíkin Laika sem varð fyrsta dýrið til að fara á sporbraut um Tellus árið 1957. Fyrr í vikunni tilkynnti Geimferðastofnun Rússlands, Roscosmos, að fyrirhugað væri að senda mannað far til tungslins árið 2029. Smíði er hafin á geimfarinu sem mun ferja hópinn en búist er við því að það fari í jómfrúarferðina sína árið 2021. Tveimur árum síðar mun geimfarið tengjast Alþjóðageimstöðinni (ISS) og árið 2025 mun það halda í ómannaða för til móts við tunglið. Rússar og evrópska geimferðastofnunin fyrirhuga sameiginlega, ómannaða för til tungslins árið 2020 með það fyrir augum að kanna hversu fýsilegt stirnið er sem áningarstaður fyrir mennina. Konurnar sex sem taka þátt í fyrrnefndu verkefni voru valdar úr hópi tíu umsækjenda sem allir höfðu staðist ítarlegar prófanir síðustu vikna. Konurnar eru allar menntaðar á sviði læknis- eða líftæknivísindanna og mega þær búast við því að þurfa að þreyta um 30 próf meðan á einangrunni stendur.
Mest lesið Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Innlent Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki Innlent Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Innlent Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Innlent Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Innlent Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Erlent Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Innlent Fleiri fréttir Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Sjá meira