Eigandi Phoenix Suns fær ekki að kaupa Rangers Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. janúar 2015 15:30 Robert Sarver. Vísir/Getty
Rangers hefur hafnað yfirtökutilboði í félagið upp á 2,7 milljarða króna frá Bandaríkjamanninum Robert Sarver. Félagið tilkynnti bresku kauphöllinni þetta í dag. Sarver er eigandi Phoenix Suns sem leikur í NBA-deildinni sem og Phoenix Mercury sem spilar í WNBA-kvennadeildinni í körfubolta. Skoska félagið hefur átt í fjárhagsvandræðum síðustu misserin og vantar fjármagn til að geta staðið að rekstri félagsins. Engu að síður var tilboð Sarver talið of lágt en hann hvattur til að leita annarra leiða til að styrkja rekstur félasins. Rangers fékk nýlega hálfa milljón punda að láni (77 milljónir kr.) frá stjórnarformanni félagsins en þarf engu að síður frekari innspýtingu í reksturinn áður en mánuðurinn er liðinn. Forráðamenn félagsins eiga nú í viðræðum við hluthafa vegna þess. Sarver segir að áhugi sinn á Rangers hafi vaknað þegar að David Robertson, fyrrum varnarmarður Rangers, vakti athygli hans á stöðu félagsins. Robertson starfar nú sem yfirmaður knattspyrnuakademíu í Phoenix. „Ég var upphaflega að leita leiða til að fjárfesta í félagi í ensku úrvalsdeildinni eða á Spáni en Davie hvatti mig til að skoða Rangers betur,“ sagði Sarver. Robertson sagði enn fremur að félagið ætti að íhuga tilboð Sarvers betur. „Ef Sarver verður hluti af félaginu mun hann ekki una sér hvíldar fyrr en að það kemst aftur í fremstu röð.“
Fótbolti Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Sjá meira