Stjóri Arons býst alveg við því að hann vilji fara í janúar Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. október 2015 13:45 Aron Einar Gunnarsson fær ekki mikið að spila hjá Cardiff. vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði karlalandsliðsins í fótbolta, hefur ekki verið fastamaður í byrjunarliði Cardiff í ensku B-deildinni á þessari leiktíð. Akureyringurinn var meiddur í byrjun tímabils og missti þá sætið sitt, en honum hefur gengið illa að vinna sætið aftur. Aron Einar hefur verið lykilmaður hjá Cardiff síðan hann gekk í raðir liðsins frá Coventry fyrir fjórum árum en er nú í stöðu sem hann þekkir ekki vel. Velski fréttavefurinn Wales Online fjallar mikið um bekkjarsetu Arons Einars og er með kosningu þar sem spurt er hvort miðjumaðurinn öflugi eigi að fá að spila meira. Nokkuð ljóst er að stuðningsmenn Cardiff eru byrjaðir að sakna Arons Einars því 75 prósent þeirra sem hafa svarað vilja sjá meira af íslenska landsliðsfyrirliðanum. „Gunnarsson er orðinn einn af bestu leikmönnunum sem Cardiff hefur fengið á þessari öld,“ skrifar blaðamaðurinn Scott Johnson í pistli á Wales Online. Cardiff á leik í kvöld gegn Bristol, en leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 HD klukkan 19.40. Óvíst er hvort Aron verði í byrjunarliðinu og er knattspyrnustjóri liðsins, Russell Slade, undirbúinn fyrir ósk um félagaskipti frá Aroni í janúar. „Aron gæti komið til mín í janúar en það á mikið eftir að gerast fram að því. Ég býst enn við því að hann spili marga leiki fram að 1. janúar,“ segir Slade í viðtali við Wales Online. „Ef hann er að spila býst ég ekki við að hann komi og biðji um að fara. Þetta fer bara eftir stöðunni sem hann verður í,“ segir Russel Slade.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Sjá meira