Ensku liðin fá meiri sjónvarpstekjur en lið í efstu deildum 48 landa í Evrópu Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. október 2015 10:00 Chelsea þarf ekkert að spara aurinn og hefur efni á að borga Radamel Falcao 140.000 pund á viku. vísir/getty
Enska úrvalsdeildin er svo langt á undan öðrum deildum Evrópu þegar kemur að sjónvarpstekjum að liðin 20 í henni fá meira en lið í efstu deildum 48 annarra deilda álfunnar til samans. Þetta kemur fram í skýrslu knattspyrnusambands Evrópu um fjármál innan fótboltans, en það er Daily Mail sem greinir frá.Sjá einnig:Mörkin hans Falcao á Englandi hafa kostað 513 milljónir stykkið Liðin 20 í ensku úrvalsdeildinni fá samtals meira en 597 lið í efstu deildum 48 landa í Evrópu, en liðin í Pepsi-deildinni eru þar á meðal. Um er að ræða allar efstu deildir álfunnar utan Þýskalands, ítalíu, Spánar, Frakklands og Rússlands. „Til að setja þetta í samhengi þá eru innan þessara 48 deilda 20 mismunandi lið sem hafa unnið Evróputitla,“ segir í skýrslunni. Þar má nefna lið eins og Benfica og Porto frá Portúgal, Ajax, PSV og Feyenoord frá Hollandi, Steaua Búkarest frá Rúmeníu og Celtic frá Skotlandi. Þessi lið í dag og löndin sem þau spila í eru ekki lengur samkeppnishæf við ensku úrvalsdeildina þegar kemur að peningum. Stærsti hluti sjónvarpsteknanna á Englandi kemur í gegnum ensku úrvalsdeildina, en ensku liðin fá samtals 3,3 milljarða punda sem er töluvert meira en liðin í hinum stóru deildunum. Þýsku liðin skiptu á milli sín 1,8 milljarði punda á síðustu leiktíð, þau spænsku 1,7 milljarði, ítölsku 1,4 milljarði og þau frönsku 1,3 milljarði punda. Þetta gerir það að verkum að liðin í ensku úrvalsdeildinni geta borgað lang hæstu launin, en launakostnaður deildarinnar var 1,9 milljarður punda í lok árs 2014.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Fótbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira