Enski boltinn

Arsenal á toppinn eftir sigur á Everton

Stefán Árni Pálsson skrifar
Olivier Giroud skallar hér boltann í netið í dag.
Olivier Giroud skallar hér boltann í netið í dag. vísir/getty
Arsenal skellti sér á toppinn í ensku úrvalsdeildinni eftir flottan, 2-1, sigur á Everton á Emirates-vellinum í London.

Olivier Giroud skallaði boltann í netið á 36. mínútu leiksins og aðeins tveimur mínútum síðar skoraði Laurent Koscielny annað mark Arsenal. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins náði Ross Barkley að minnka muninn fyrir Everton og var staðan 2-1 í hálfleik.

Þrátt fyrir mörg marktækifæri í síðari hálfleiknum náði hvorugt liðið að skora fleiri mörk og lauk því leiknum með sigri Arsenal.

Liðið er því í efsta sæti deildarinnar með 22 stig. Everton er í því tíunda með 13 stig. 

Olivier Giroud kemur Arsenal í 1-0


Laurent Koscielny kemur Arsenal í 2-0


Ross Barkley minnkar muninn fyrir Everton





Fleiri fréttir

Sjá meira


×