Erlent

Fyrstu þingkosningar Egyptalands frá 2012

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Auglýsingar frambjóðenda hanga enn víða.
Auglýsingar frambjóðenda hanga enn víða. vísir/epa
Þingkosningar fara fram í Egyptalandi í dag. Kjörstaðir opnuðu snemma í morgun en þetta eru fyrstu kosningarnar sem fara fram í landinu síðan síðasta ríkisstjórn leysti þingið upp árið 2012. Hefur landið verið án þings síðan þá. Þetta kemur fram á vef BBC.

Stjórnvöld í landinu hafa gefið út að kosningarnar séu fyrsta skrefið í átt að auknu lýðræði í landinu. Fæstir búast hins vegar við því að flokkur forsetans Abdul Fattah al-Sisi muni eignast nokkurn andstæðing á þinginu.

al-Sisi er fyrrum hershöfðingi en hann tók við sem forseti árið 2013 eftir að Mohammed Morsi var steypt af stóli í kjölfar mikilla óeirða í landinu. Flokkur Morsi, Bræðralag múslima, átti um helming þingsæta á síðasta þingi en flokkurinn hefur verið bannfærður. Flestir leiðtoga hans eru nú í fangelsi og bíða sumir þeirra aftöku.

Sömu sögu er ekki hægt að segja af stuðningsmönnum Hosni Mubarak sem var forseti landsins á árunum 1981-2011 en margir ráðherrar og ráðgjafar hans eru á kjörseðlinum.

Tvöföld umferð er í þingkosningunum og er ekki búist við niðurstöðum úr þeim fyrr en í desember. 596 þingmenn verða kosnir.




Tengdar fréttir

Óttast óöld í Egyptalandi

Forseti Egyptalands, Abdul Fattah al-Sisi, óttast að mikil óöld sé í uppsiglingu í landinu í kjölfar þess að vígahópur sem tengist ISIS myrti 32 egypska her-og lögreglumenn síðastliðinn fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×