Moses hetja Stoke | Barton fékk rautt í tapi QPR Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. febrúar 2015 17:18 Ron Vlaar brýtur á Victor Moses. vísir/getty
Sex leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Swansea vann Manchester United öðru sinni á leiktíðinni, Arsenal komst upp í þriðja sætið með sigri á Crystal Palace og nýliðar Burnley náðu í óvænt stig á Brúnni. Aston Villa tapaði 1-2 fyrir Stoke á heimavelli í fyrsta leik liðsins undir stjórn Tims Sherwood. Scott Sinclair, lánsmaður frá Manchester City, kom Villa yfir á 20. mínútu eftir sendingu frá Fabian Delph. Á lokamínútu fyrri hálfleiks jafnaði Senegalinn Mame Biram Diouf metin með skalla eftir fyrirgjöf frá Stephen Ireland og þannig var staðan þar til í uppbótartíma. Þá braut Ron Vlaar, fyrirliði Aston Villa, á Victor Moses innan vítateigs. Dómarinn benti á vítapunktinn og rak Vlaar út af. Moses tók spyrnuna sjálfur, skoraði af öryggi og tryggði Stoke sinn þriðja sigur í síðustu fimm leikjum. Hull City náði í sitt sjöunda stig í síðustu þremur leikjum þegar liðið vann QPR 2-1 á heimavelli. Nikica Jelevic kom Hull yfir á 16. mínútu með sínu 8. deildarmarki í vetur. Á 32. mínútu fékk ólátabelgurinn Joey Barton að líta rauða spjaldið en aðeins sjö mínútum síðar jafnaði Charlie Austin metin eftir sendingu frá Matt Philipps. Þetta var 14 mark Austins í 23 deildarleikjum en hann er í hópi markahæstu leikmanna úrvalsdeildarinnar. Það var síðan Dame N'Doye sem skoraði sigurmarkið einni mínútu fyrir leikslok. Hull er komið upp í 15. sæti með 26 stig, en QPR er í því 17. með 22 stig. Sunderland gerði sitt 13. jafntefli í vetur þegar West Brom kom í heimsókn á Ljósvang. Ekkert mark var skorað en liðin hittu aðeins samtals þrisvar sinnum á markið í öllum leiknum. West Brom, sem hefur aðeins tapað einum af síðustu sex leikjum sínum, er í 14. sæti með 27 stig, tveimur stigum meira en Sunderland sem er í 16. sæti.Úrslit dagsins: Swansea 2-1 Manchester United Crystal Palace 1-2 Arsenal Chelsea 1-1 Burnley Aston Villa 1-2 Stoke City Hull City 2-1 QPR Sunderland 0-0 West Brom
Enski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira