Eiður Smári: Stoltur að vera fyrirliði Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. febrúar 2015 08:30
Eiður Smári Guðjohnsen heldur áfram að hafa mikil áhrif á spilamennsku Bolton í ensku B-deildinni, en hann skoraði fyrsta markið í 3-1 sigri gegn Fulham í gærkvöldi. Eiður var einnig á skotskónum um daginn þegar hann skoraði úr víti gegn Liverpool í leik sem úrvalsdeildarliðið vann með marki í uppbótartíma. „Þetta hafa verið erfiðar vikur þar sem bikarleikirnir gegn Liverpool rændu okkur mikilli orku. Við viljum samt ekki nota það sem afsökun. Við vitum vel að það sem við sýndum gegn Derby var ekki nógu gott,“ sagði Eiður Smári við heimasíðu Bolton eftir leikinn í gær, en Bolton tapaði síðasta leik gegn Derby, 4-1. „Við töluðum um það í vikunni og ætluðum okkur að koma til baka. Mér fannst við spila virkilega vel þegar við komumst í gang og sýndum mikinn karakter að koma til baka. Allir samherjar mínir voru frábærir og það er hægt að velja tíu manns sem besta leikmann leiksins.“ Bolton hefur verið í því að lenda undir í leikjum sínum að undanförnu en að þessu sinni tókst liðinu að vinna. „Við verðum að átta okkur á því að allt getur gerst í fótboltaleik. Þetta er í þriðja sinn á skömmum tíma sem við lendum undir. Við lentum undir á móti Úlfunum en náðum í jafntefli, gerðum það aftur gegn Derby og komum ekki til baka en gerðum það síðan í kvöld eftir að lenda undir,“ sagði Eiður Smári. „Við vorum virkilega góðir síðustu 15 mínútur fyrri hálfleiks og við vorum staðráðnir í að spila jafnvel í byrjun seinni hálfleiks. Mér fannst við góðir og vorum sterkir í vörninni á meðan við pressuðum þá stíft.“ Sem fyrr segir bar Eiður Smári fyrirliðabandið í leiknum í gær og hann viðurkennir að það hafi fyllt hann stolti. Mestu máli skiptir þó að vinna. „Ég er stoltur. Þetta var sérstök stund. Það er sérstök tilfinning þegar maður ber fyrirliðabandið. Það er samt bara frábært að hafa unnið leikinn. Það er aðalatriðið. Að fara heim með sigurtilfinningu er það sem fótbolti snýst um. Það er besta tilfinning heims,“ sagði Eiður Smári. Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Eiður Smári skoraði fyrir Bolton í kvöld Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrsta mark Bolton í kvöld í 3-1 sigri á Fulham í ensku b-deildinni í fótbolta. Eiður Smári er nú búinn að finna skotskóna og er heldur betur að stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Bolton. 10. febrúar 2015 22:13 Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Stjarnan játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Sjá meira
Eiður Smári skoraði fyrir Bolton í kvöld Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrsta mark Bolton í kvöld í 3-1 sigri á Fulham í ensku b-deildinni í fótbolta. Eiður Smári er nú búinn að finna skotskóna og er heldur betur að stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Bolton. 10. febrúar 2015 22:13
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn