Andy Carroll spilar ekki fleiri leiki á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2015 15:00 Andy Carroll. Vísir/Getty
Enski framherjinn Andy Carroll er á leiðinni í aðgerð á hné og mun ekki spila meira með West Ham á tímabilinu en félagið staðfesti þetta við enska fjölmiðla í dag. Andy Carroll, sem hefur verið afar óheppinn með meiðsli á tíma sínum á Upton Park, meiddist á vinstra hné í markalausa jafnteflinu á móti Southampton á miðvikudagskvöldið. Andy Carroll þurfti að klára leikinn þar sem að West Ham var búið með allar skiptingarnar sínar í leiknum. Sérfræðingur skoðaði hné Andy Carroll í dag og niðurstaðan var að senda hann á skurðarborðið sem þýðir að tímabilið er búið hjá honum. Andy Carroll, sem er 26 ára gamall, hefur skorað fimm mörk í fjórtán leikjum með West Ham í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en hann missti af tíu fyrstu leikjunum vegna meiðsla á ökkla. Carroll hefur meiðst fimm sinnum alvarlega síðan að hann kom til West Ham frá Liverpool. Hann meiddist fyrst aftan í læri í september 2012 (frá í einn mánuð), þá á hné í nóvember 2012 (frá í tvo mánuði), hann meiddist á hæl í maí 2013 (frá í sjö mánuði) og sleit síðan liðbönd í ökkla í júlí 2014 (frá í fjóra mánuði).
Enski boltinn Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Stjarnan játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Lækkaði launin til að upplifa drauminn Enski boltinn „Það er hrikalegt að sjá þetta“ Íslenski boltinn Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn