Lambert: Gat ekki tekið ákvörðun um framtíðina á fimm tímum Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. febrúar 2015 14:30 Rickie Lambert verður hjá Liverpool út tímabilið að minnsta kosti. vísir/getty
Rickie Lambert, framherji Liverpool, gat farið til Aston Villa á lokadegi félagaskiptagluggans í janúar en ákvað að berjast fyrir sæti sínu hjá Liverpool. Heimkoma Lamberts hefur ekki verið neitt sérstök. Hann hefur skorað þrjú mörk í 26 leikjum og aðeins byrjað tíu leiki. Aston Villa vildi ólmt fá hann í sínar raðir og var Birmingham-félagið tilbúið að bjóða Lambert tveggja og hálfs árs samning. Hann hafnaði því á síðustu stundu. „Ég fékk símtal frá Brendan Rodgers klukkan fjögur á lokadegi félagaskipta. Hann sagði mér að Aston Villa hafði áhuga,“ segir Lambert í viðtali við Liverpool Echo. „Stjórinn sagði að hann vildi ekki sleppa mér, en bauð mér að fara ef ég vildi spila reglulega. Það fannst mér sanngjarnt af honum.“ „Ég talaði við umboðsmanninn minn, konuna mína og mennina hjá Villa. Það munaði mjög litlu að ég færi því það var búið að samþykkja allt.“ „En á endanum var þetta ekki nægur tími fyrir mig til að segja já. Ég gat ekki tekið ákvörðun um næstu tvö ár í lífi mínu á fjórum til fimm klukkutímum. Ég þarf heldur ekki bara að hugsa um mig heldur fjölskylduna mína. Þetta var bara eitthvað sem ég gat ekki gert,“ segir Rickie Lambert.
Enski boltinn Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Fleiri fréttir Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ Sjá meira