Coutinho skaut Liverpool á Wembley | Sjáið sigurmark Coutinho Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2015 09:19 Philippe Coutinho fagnar sigurmarki sínu. Vísir/Getty
Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho tryggði Liverpool 1-0 sigur á b-deildarliðinu Blackburn Rovers í kvöld í endurteknum leik liðanna í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Fyrri leiknum endaði með jafntefli og eina markið í kvöld kom þegar tæpar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum og liðin voru búin að spila í meira en 160 mínútur án þess að skora. Sigurinn tryggði Liverpool sæti í undanúrslitaleiknum á Wembley sem verður á móti Aston Villa 19. apríl næstkomandi. Daginn áður mætast Arsenal og Reading í hinum undanúrslitaleiknum. Liverpool var 71 prósent með boltann í fyrri hálfleiknum en tókst þó ekki að skapa sér alvöru dauðafæri þótt að liðið hafi reynt tíu skot í hálfleiknum. Það leit allt út fyrir að Blackburn-liðið ætlaði bara að halda út og treysta á vítakeppni en Blackburn-menn bitu frá sér í upphafi seinni hálfleiksins. Simon Mignolet var í sviðsljósinu á upphafsmínútum seinni hálfleiksins en hann varði fyrst langskot Tom Cairney í horn og svo í framhaldinu þrumuskalla Ben Marshall. Mignolet varði skalla Ben Marshall í stöngina og út og þar höfðu Liverpool-menn heldur betur heppnina með sér. Philippe Coutinho skoraði síðan markið mikilvæga á 71. mínútu eftir þríhyrningsspil við Jordan Henderson. Coutinho slapp inn í teiginn og skoraði með þrumuskoti í stöngina og inn. Liverpool slapp með skrekkinn í uppbótartíma þegar Simon Mignolet varði vel frá Simon Eastwood, markverði Blackburn, sem var kominn fram í hornspyrnu.Philippe Coutinho kemur Liverpool í 1-0
Enski boltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Fótbolti Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira