Fimm eiga möguleika á að vinna Gullhanskann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. maí 2015 15:30 Fabianski hefur haldið 13 sinnum hreinu í vetur. vísir/getty
Fimm markmenn möguleika eiga enn möguleika á að vinna gullhanskann svokallaða, sem veittur er þeim markmanni sem heldur oftast hreinu í ensku úrvalsdeildinni. Þetta eru þeir Lukasz Fabianski (Swansea), Fraser Forster (Southampton), Simon Mignolet (Liverpool), Joe Hart (Man City) og Thibaut Courtois (Chelsea). Þeir fjórir fyrstnefndu hafa haldið marki sínu hreinu 13 sinnum í vetur og eiga eftir að leika einn leik í deildinni. Courtois hefur haldið markinu tólf sinnum hreinu en Chelsea á tvo leiki eftir svo Belginn stóri gæti haldið marki sínu 14 sinnum hreinu á tímabilinu. Ljóst er að Forster kemst ekki hærra á listanum en hann er meiddur og hefur ekki leikið með Southampton síðan í 2-0 sigri liðsins á Burnley 21. mars. Svo gæti farið að umræddir fimm markmenn deili verðlaununum en það hefur aðeins einu sinni gerst síðan Gullhanskinn var fyrst veittur tímabilið 2004-05. Það var í fyrra þegar Petr Cech (Chelsea) og Wojciech Szczesny (Arsenal) héldu báðir 16 sinnum hreinu. Enginn markmaður utan fimm stærstu félaganna í ensku úrvalsdeildinni - Man Utd, Man City, Chelsea, Arsenal, Liverpool - hefur fengið Gullhanskann en líklegt er að breyting verði þar á í ár. Hart, Cech og Pepe Reina (Liverpool) hafa oftast hlotið þessa nafnbót, eða þrisvar sinnum hver.Þessir hafa haldið oftast hreinu í ensku úrvalsdeildinni í vetur: Lukasz Fabianski, Swansea - 13 Fraser Forster, Southampton - 13 Joe Hart, Manchester City - 13 Simon Mignolet, Liverpool - 13 Thibaut Courtois, Chelsea - 12 David de Gea, Manchester United - 10 Costel Pantilimon, Sunderland - 10
Enski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Fleiri fréttir Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Sjá meira