Enski boltinn

Moyes reiknar ekki með frekari kaupum í janúar

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Moyes er byrjaður að versla
Moyes er byrjaður að versla Mynd/Getty
David Moyes knattspyrnustjóri Manchester United reiknar ekki með að félagið kaupi fleiri leikmenn í janúar eftir að liðið gekk frá kaupunum á JuanMata frá Chelsea í gær fyrir metfé.

Englandsmeistarar Manchester United hafa verið orðaðir við LukeShaw hjá Southampton og félagana ToniKroos og Dante hjá Bayern Munchen en Moyes reiknar ekki með að styrkja liðið enn frekar fyrr en næsta sumar.

“Ég býst ekki við að kaupa fleiri leikmenn í janúar,” sagði Moyes í samtali við heimasíðu Manchester United eftir kaupin á Mata.

“Ég er enn að vinna í vissum hlutum. Við vitum hvað við viljum og ef eitthvað breytist í vikunni munum við reyna hvað við getum, það getur alltaf gerst.

“Þetta er vonandi fyrstu kaupin af mörgum en það er líklegra að meira gerist í sumar,” sagði Moyes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×