Hlaut þakkir frá páfanum Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. júlí 2014 00:01 Páfinn heilsar dótturinni sem Ibrahim fæddi í fangelsi í maí. VÍSIR/AFP
Meriam Ibrahim, súdönsk kona sem flúði til Ítalíu eftir að dauðadómur hennar fyrir trúvillu var dreginn til baka, hitti í gær páfann í Róm. Fréttastofa BBC greinir frá þessu. Ibrahim hlaut athygli heimsins þegar dómstóll í Súdan fyrirskipaði að hún yrði hengd fyrir að hafna íslamstrú. Mannréttindasamtök víða um heim fordæmdu þessa ákvörðun, en Ibrahim var komin átta mánuði á leið þegar dómurinn féll og dvaldi í fangelsi með ungum syni sínum. Ibrahim fæddi dóttur sína, Mayu, meðan á fangelsisvist hennar stóð. Fjölskylda Ibrahim kærði hjónband hennar í liðinni viku á þeim forsendum að ólöglegt sé fyrir íslamskar konur að giftast út fyrir trúna en eiginmaður hennar, Daniel Wani, er kristinn – rétt eins og Ibrahim. Eftir að hæstiréttur felldi úr gildi dauðadóminn yfir henni, eyddi Ibrahim rúmum mánuði í bandaríska sendiráðinu í Khartoum. Hún hefur nú komist til Rómar með eiginmanni sínum og börnum, en sjálfur forsætisráðherra Ítalíu, Matteo Renzi, tók á móti henni á flugvellinum í gær. „Í dag er dagur fagnaðar,“ sagði Renzi er hann hitti Ibrahim og fjölskyldu hennar. Hún fékk svo að hitta páfann sem þakkaði henni fyrir trúfestu sína, en Ibrahim hélt því fram fyrir dómstólum að hún hefði alla tíð verið kristin. Fundur hennar með páfanum varði í um hálfa klukkustund og segir talsmaður Páfagarðs hann vera stuðningsyfirlýsingu til allra þeirra sem hafa þurft að þjást fyrir trú sína. Ítölsk yfirvöld höfðu ekki haft neina aðkomu að máli Ibrahim áður en hún ákvað að flýja til landsins en varautanríkisráðherra Ítalíu, Lapo Pistelli, flaug með henni frá Khartoum. Hann birti mynd á Facebook-síðu því til staðfestingar með yfirskriftinni, „Markmiðinu náð.“ Post by Lapo Pistelli.
Tengdar fréttir Dauðadómur fyrir trúvillu dreginn til baka í Súdan Konu sem dæmd var til hengingar fyrir að snúa baki við íslamstrú hefur verið sleppt úr fangelsi. 23. júní 2014 14:53 Dæmd til dauða komin átta mánuði á leið 27 ára kona í Súdan var einnig dæmd til að hljóta 100 svipuhögg fyrir hjúskaparbrot. 15. maí 2014 16:38 Kona sem sýknuð var í Súdan í gær handtekin á ný Meriam Ibrahim var dæmd til dauða í síðasta mánuði fyrir að snúa baki við íslamstrú en henni var sleppt úr fangelsi í gær. 24. júní 2014 13:51 Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Sjá meira
Dauðadómur fyrir trúvillu dreginn til baka í Súdan Konu sem dæmd var til hengingar fyrir að snúa baki við íslamstrú hefur verið sleppt úr fangelsi. 23. júní 2014 14:53
Dæmd til dauða komin átta mánuði á leið 27 ára kona í Súdan var einnig dæmd til að hljóta 100 svipuhögg fyrir hjúskaparbrot. 15. maí 2014 16:38
Kona sem sýknuð var í Súdan í gær handtekin á ný Meriam Ibrahim var dæmd til dauða í síðasta mánuði fyrir að snúa baki við íslamstrú en henni var sleppt úr fangelsi í gær. 24. júní 2014 13:51