United úr leik eftir vítaspyrnukeppni | Myndir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. janúar 2014 20:36 Sir Alex Ferguson var á vellinum í kvöld og fór vafalítið sár og svekktur heim til sín. Vísir/Getty
Manchester United skoraði aðeins úr einu víti þegar að Sunderland tryggði sér sæti í úrslitaleik ensku deildabikarkeppninnar með sigri á United í vítaspyrnukeppni. Það var mikil dramatík í leiknum, ekki síst undir lok leiksins. Jonny Evans hafði komið United yfir í venjulegum leiktíma en Sunderland vann fyrri leikinn, 2-1. Samanlögð úrslit voru því 2-2 og þurfti því að framlengja leikinn. Útivallarmarkið hefði hins vegar tryggt United sæti í úrslitaleiknum hefðu þetta orðið úrslit leiksins að framlengingunni lokinni. En þegar að Phil Bardsley skoraði jöfnunarmark Sunderland eftir hörmuleg mistök David de Gea í marki United á lokamínútu framlengingarinnar virtist öll von úti fyrir heimamenn.En þá kom Javier Hernandez til skjalanna og hann náði að skora mark aðeins mínútu síðar - þegar framlengingin var komin í uppbótartíma. Niðurstaðan því 2-1 sigur United og samanlögð úrslit 3-3. Því þurfti vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit. Þar var aðeins skorað úr þremur spyrnum og var Vito Mannone, markvörður Sunderland, hetjan er hann varði frá Rafael úr fimmtu og síðustu spyrnu heimamanna. Niðurstaðan er því að Sunderland mætir Manchester City í úrslitaleik ensku deildabikarkeppninnar á Wembley í byrjun næsta mánaðar. Manchester United komst 1-0 yfir í fyrri hálfleik með marki Jonny Evans eftir undirbúning Danny Welbeck. Síðari hálfleikur var svo opinn og skemmtilegur en þrátt fyrir að United fengi betri færi var Sunderland ávallt líklegt til að jafna metin. Eftir markalausan síðari hálfleik var gripið til framlengingar.Lengi vel var lítið um opin færi í framlengingunni og hefði 1-0 sigur dugað United til að komast í úrslitaleikinn. En á lokamínútu venjulegs leiktíma skoraði Phil Bardsley, fyrrum leikmaður United, ótrúlegt mark fyrir Sunderland. David de Gea missti skot hans inn í eigið net og virtist Bardsley hafa tryggt sínum mönnum sigur. En leikurinn hélt áfram og náði Javier Hernandez að koma United yfir á nýjan leik með skoti af stuttu færi í slána og inn - og það í uppbótartíma síðari hálfleiks framlengingarinnar. Því þurfti vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit.
Enski boltinn Mest lesið Fluga hjálpaði kúlunni ofan í holuna Golf Fyrsti homminn í landsliði neyðist til að hætta Fótbolti Langri bið Sveindísar lauk með sætum sigri á meisturunum Fótbolti Fengu milljóna sekt eftir ólætin á Íslandi Fótbolti Grét í viku þegar Arsenal vildi hann ekki en sama félag borgar nú marga milljarða Enski boltinn Meiddist alvarlega hjá sjúkraþjálfaranum Fótbolti „Erum við virkilega í fituprósentum 2025?“ Íslenski boltinn Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Körfubolti Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Enski boltinn „Lukkudýrið“ í mál við félagið Körfubolti Fleiri fréttir Ófriðarbál hjá Forest og stjórinn mögulega rekinn Hvetur fólk til að brjóta reglu og velja Haaland „Ég vil hundrað prósent sjá hann aftur í Newcastle-treyju“ Grét í viku þegar Arsenal vildi hann ekki en sama félag borgar nú marga milljarða Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Tottenham beinir sjónum sínum að besta unga leikmanninum Telur X-faktorinn Eze vera púslið sem Arsenal vantaði Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Leeds kaupir Okafor og liðin í ensku úrvalsdeildinni aldrei eytt meiru Wirtz strax kominn á hættusvæði Ljóst hvenær Liverpool og Man. Utd mætast Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Mynd af Jota það síðasta sem leikmenn Liverpool sjá Arsenal að stela Eze frá Tottenham Framherjunum fækkar aftur hjá Arsenal Isak sást á æfingasvæði Newcastle í dag Á að reka umboðsmanninn á stundinni Kannast ekkert við fullyrðingar Fabrizio Romano Valdi úrvalslið Púllara: „Hefði átt að setja Djimi Traoré í vörnina“ Arnar um breytingar Liverpool: „Eins og copy-paste af PSG“ Arsenal skoðar markaðinn vegna meiðsla Havertz „Skilyrði félagsins fyrir sölu hafa ekki verið uppfyllt“ Dóttir Scholes fékk svakalegt augnaráð frá pabba sínum Liverpool búið að selja leikmenn fyrir meira en 33 milljarða í sumar Pep Guardiola hjálpar Ten Hag Isak rýfur þögnina og segir Newcastle hafa svikið loforð Völdu Mo Salah bestan en Chris Wood frekar en Haaland í lið ársins Sóla ekki skemmt yfir Owen-treyju: „Vil ekki sjá hana“ Eze fari til Spurs fyrir vikulok Sjáðu mark Chiesa frá öllum vinklum og öll hin mörkin Sjá meira